Tilraunir og tenglar

Skemmtilegar tilraunir og vefsíður tengdar vísindum

Tenglar

Experimentarium í Kaupmannahöfn.

Universeum í Gautaborg.

Tom Tits rétt utan við Stokkhólm.

Xperiment Huset í Vexjö í Svíþjóð

Navet

Science Museum í London, Englandi

Tilraunir í eðlisfræði, Námsgagnastofnun

Skemmtilegar tilraunir (biðjið um hjálp frá fullorðnum)

Freyðandi eldfjall

Notaðu venjuleg eldhúsefni til að gera freyðandi eldfjall. það sem þarft er:

2 matskeiðar matarsódi

2 matskeiðar hveiti

edik

Matarlit(ekki nauðsynlegt en skemmtilegra)

stórt drykkjarglas

vatnsheldur bakki

Settu glasið á bakkann. Helltu ediki í glasið þar til það er hálffullt. Bættu síðan hveitinu og matarlitnum við og hrærðu. Láttu síðan matasódann í glasið og fylgstu með gosinu.

Niðurstaða

Vökvinn í glasinu byrjar að freyða því þegar matasóda og ediki er blandað saman fer af stað efnahvarf og í því myndast meðal annars koldíoxíð. Koldíoxíðið myndar loftbólur en hveitið herðir kúlurnar og lætur þær endast lengur.

Ástæðan fyrir því að matarsódinn og edikið blandast svona vel saman er sú að matarsódinn er basi en edikið sýra, en sýrur og basar ganga mjög auðveldlega í efnahvarf. Efnin sem myndast í efnahvarfinu hafa meira rúmmál en þau sem fyrir voru og því freyðir uppúr glasinu

Sprengja (biðjið um hjálp frá fullorðnum)

Þessi tilraun getur verið mjög skemmtileg en leggja verður áherslu á það að leita aðstoðar hjá fullorðnum. Það sem þarf er

Vatn

Bolli

Plastpoki með rennílás

Eldhúspappír

1 matskeið matarsódi

Edik

Þegar sprengjan springur verður það býsna sóðalegt svo það er best að láta hana springa úti en annars í vaskinum eða baðkarinu.

Það er mjög mikilvægt að það séu engin göt á pokanum en það má prófa pokan með því að hella vatni í hann og snú á alla kanta.

Ef pokinn lak ekki er hægt að hefja tilraunina. Setjið matarsódann á miðja þurrkuna og brjótið saman. Hellið í pokann hálfum bolla af ediki og 1/4 hluta bolla af heitu vatni.

Þá er komið að snúna hlutanum sem gott er að hafa fullorðin með sér í. Setjið þurrkuna með matarsódanum í pokann og lokið honum hratt áður en fer að freyða of mikið.

Hristið pokann og látið hann þar sem hann á að springa og fylgist með.

Niðurstaða

Þeir sem eru búnir að gera freyðandi eldfjall hér fyrir ofan sjá að í raun er um sama efnahvarfið að ræða. þegar matarsódinn og edikið blandast saman myndast koldíoxíð sem lætur pokann þenjast út og að lokum springa.

 

Myglubúskapur

það er áhugavert að skoða hvernig matur myglar en fyrst skaltu fá leyfi hjá foreldri, það sem þú þarft er:

Glært ílát með loki(stóru krukkurnar utan um rauðkál er góður kostur, en ílátinu er hent að lokinni tilrauninni)

Límband

Vatn

Matarafganga(t.d brauð, ávexti, grænmeti eða ost)

ATH ekki nota kjöt eða fisk því það kemur vond lykt

Finndu 4-5 mismunandi matarafganga, ekki hafa þá of stóra því þeir þurfa að komast í krukkuna og helst ekki í mjög mikilli kremju.

Dýfðu matnum í vatn og láttu hann í krukkuna. Settu lokið á krukkuna og festu vel. Settu svo límband utan á skilin milli krukkunnar og loksins svo hún verði vel einangruð. Settu krukkuna á einhvern góðan stað þar sem engin hendir henni eða missir í gólfið.

Niðurstaða

Skoðaðu krukkuna daglega og athugaðu hvernig myglan myndast og dreifist. það mun ekki mikið gerast fyrstu 2-3 dagana en svo fara hlutir að gerast og krukkan verður með tímanum mjög ógeðsleg. Tveim vikum eftir að krukkunni var lokað mun lítið gerast.

Þegar þú ert hætt/ur að skoða mygluna og vilt losa þig við krukkuna skaltu henda henni beint í ruslið. Ekki reyna að endurnýta hana, ekki einu sinni opna lokið því það er ekki holt fyrir fólk að anda að sér myglu

 

 

 

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Feb. 2012
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
 

vefkönnun

Hvaða dýr af eftirfarandi dýrum er í uppáhaldi hjá þér?


 


Leturstærð: