Glöggur geimvera
Hver er Glöggur og hvað er hann að gera hér ?
Glöggur geimvera í Vísindaveröldinni
Glöggur er geimvera, eins og ég og þú, Guttormur boli og hænan Hallgerður. Hann er þó ekki úr okkar sólkerfi, en kom hingað um langan veg úr öðru sólkerfi, ekki ósvipuðu okkar. Hann kom í langferðasporunum sínum, en það eru sérstaklega vísindalega hönnuð fótspor sem gera Glöggi kleift að ferðast á milli sólkerfa. Auðvitað á hann líka spottaspor eins og allir á hans plánetu, en spottaspor flytja mann á ljóshraða mun styttri vegalengdir. Hann hefur lagt á sig erfitt og langt ferðalag til þess að finna föttin sem allir heima hjá honum eru löngu búnir að týna. Þar eru menn hættir að fatta. Þeir vita allt og því uppgötvar enginn nokkurn skapaðan hlut lengur. Glöggur er kominn til Íslands til að safna föttum á tank.

Hann kemur frá Sílandi, sem er eyja í norðurhafi á plánetunni Rjöð í sólkerfi virðulegu vitringanna, en þar býr hann í höfuðborginni Kjareyvík og rekur dúshýragarðinn í Lagaurdal. Glöggur býr í dúshýragarðinum ásamt foreldrum sínum, þeim Snöggi og Snerpu, sem reka þennan vinsæla skemmtigarð í Kjareyvík. Að auki á hann eldri systur sem heitir Slydda.
Glöggur sér um vísindaveröldina í sínum dúshýragarði í Kjareyvík og þar hafa menn áhyggjur af því að vera búnir að glata hæfileikanum til að uppgötva- fyrir fullt og allt. Því lagði hann í langferðina að finna föttin og safna þeim á tanka til frekari rannsókna heima í dúshýragarðinum.
Þar sem allir á Sílandi vita að sjálfsögðu að það er til svipað land í öðru sólkerfi, aðeins mun frumstæðara, land þar sem allir eiga eftir að fatta svo margt, var tilvalið að senda þangað landkönnuð til að skoða fött og reyna að koma þeim á tanki heim til Sílands.
Ef Glöggur safnar vísindahugmyndum annarra, safnar því sem aðrir hafa fattað, þá getur hann hlaðið föttum á tankinn til rannsókna.
Langferðasporin settu stefnuna á húsdýragarðinn í Laugardal og Glöggur var örþreyttur við komuna. Af því að hann er staddur í öðru sólkerfi þarf hann mun fleiri geimkraftastundir í hvíld en venjulega. Þess vegna hangir hann stundum í langferðasporunum í Vísindaveröldinni og þá sést hann ekki sjálfur þótt búningurinn sé á langferðasporunum. Um leið og Glöggur rannsakar föttin kemst hann að því að geimverur hér hafa undarlega siði. Þær eru til dæmis í góðu og vondu skapi, nokkuð sem er löngu búið að afnema á Sílandi þar sem menn eru alltaf í nokkurn veginn sama skapinu. Geimverur hér öskra, sussa, hvísla og brosa, setja upp skeifu og allskyns furðusvipi. Það hefur Glöggur aðeins heyrt um en aldrei séð með berum augum.
Glöggur er afskaplega ljúf og góð geimvera. Hann kemst mjög snemma, eftir komuna til Íslands, að því að hann getur safnað eigin föttum hér - finna í því sílenska. Föttin setur hann í tankinn góða sem er merktur: Fött fyrir Síland. Í tanknumþar sem það er svo margt nýtt sem hann uppgötvar sjálfur í íslensku umhverfi sem er ekki að er segulband þannig að þegar Glöggur safnar föttum stillir hann á upptöku og þannig getur hann talað föttin inn í tankinn og látið aðra tala sínar hugmyndir inn. Þannig getur hann líka spilað fött fyrir fólk sem vill heyra hverju hann hefur safnað á tankinn.

