Gervigrein í Vísindaveröldinni 21. ágúst
Í stóra tjaldinu við selalaugina hefur verið margt um að vera í sumar og Glöggur sést á reiki. Þar er staðsett Vísindaveröld garðsins ásamt Sjávardýrasafni. Nokkra sunnudaga hefur verið sett á laggirnar sérstakir þemadagar í samstarfi við Rannís, Marel og fleiri. Þann 21. ágúst síðastliðinn var yfirskrift þemadagsins Bílskúrsgervigreind og samanstóð af hinum ýmsu tækniundrum sem má sjá nánar hér á vefslóð senda frá CADIA vefnum.
http://ailab.ru.is/events/2005/husdyragardurinn/
Glöggur geimvera er lentur!
Fjörugur og fyndinn stígur hann sín fyrstu geimspor í stóra tjaldinu við selalaugina í sumar. Þetta er hann Glöggur geimvera. Hans sögu getið þið lesið hér á vefnum undir Vísindaveröld/Glöggur geimvera. Hvenær er hægt að hitta Glögg?
Glöggur kemur fram í eða við Vísindaveröldina einu sinni í viku, á sunnudögum á tímabilinu 12. júní til og með 21. ágúst. Hann mun birtast um kl. 14.30 og spjallar og trallar við gesti um stund.

