Villt dýr í hremmingum
Verkefnið er styrkt af Fálkanum hf.

Villt dýr lenda í hremmingum í náttúrunni af marvíslegum ástæðum.
Í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum hefur verið útbúið athvarf fyrir villt dýr sem lenda í hremmingum. Ef allt gengur að óskum er þeim komið til góðar heilsu á ný og sleppt frjálsum í náttúruna.
Dýrin eru að öllu jöfnu ekki til sýnis enda flest það veik til að byrja með að hlúa verður að þeim inni í ró og næði.
Þegar styrkur þeirra vex hafa sum þeirra möguleika á að stæla vöðvana að nýju úti. Þá gefst gestum okkar stundum einstakt tækifæri til að fræðast um lifnaðarhætti dýrana áður en þeim er sleppt á ný út í náttúrna.
Frá árinu 1990 hafa komið um 60 tegundir “villtra dýra í hremmingum” mest fuglar og um 1000 dýr.
Fálkinn styður villt dýr í hremmingum
Fyrirtækið Fálkinn sem átti 100 ára afmæli árið 2004 gerðist myndarlegur bakhjarl þessa verkefnis. Allt framlag Fálkans er notað í aðhlynningu dýrana, uppbyggingu á aðstöðu fyrir dýrin og menntunar starfsfólks á þessu sviði.
Einna mesta athygli vekja fáséðar tegundir dýra sem koma í garðinn til aðhlynningar. Sem dæmi um slík dýr eru fálkar. Þeir koma flestir á haustin, óreyndir fuglar, ungar sem eru fæddir um vorið.
Algengast er að fá þá grútarblauta eftir viðureign við fýl og eru þeir í misjöfnu ásigkomulagi við komuna. Einnig eru algengt vængbrot sem er öllu erfiðara viðfangs. Fyrir utan hlýju, þvott, vítamín, fóðrun, dýralæknisskoðun, lyf og umbúðir þá þarf að gefa þeim færi á að safna kröftum og jafnvel hafa fjaðraskipti áður en þeim er sleppt.
Dvöl þessara dýra í garðinum er því mislöng en tilgangurinn alltaf sá sami þ.e. að koma þeim sem fyrst í sitt náttúrulega umhverfi því þar líður villtum dýrum best. Við viljum biðja gesti Fjölskyldu- og húsdýragarðsins að sýna þessum villtu dýrum einstaka tillitsemi í umgengni þannig að hægt sé að útskrifa þau sem fyrst aftur frjáls í náttúruna.

