Selir

7.9.2004

Selir

Sæll selur í krapi

 

Fjölskyldugerð: brimill, urta og kópur.

Þyngd: meðaltal: brimill 115 kg. og urta 92 kg.
Fengitími: ágúst-september.
Meðgöngutími: 8-10 mánuðir.
Fjöldi afkvæma: 1 kópur.
Nytjar: skinn, kjöt og spik.

 

 

Stiklur um Seli

  • Landselir og útselir kæpa við Ísland, en meðal þeirra tegunda sem flækjast hingað úr Íshafinu eru hringanóri, vöðuselur, kambselur og blöðruselur.
  • Litur á selum er dökkur, steingrár, eða gulgrár á baki og með þéttum dökkum eða ljósum dílum. Á hliðum og kviði er hann ljósgrár en liturinn getur verið breytilegur eftir árstíma, kynferði og aldri.
  • Selir eru spendýr eins og við mannfólkið og því með heitt blóð. Ólíkt fiskum, sem hafa aðlagast köldu vatni með köldu blóði, hafa selir þróað með sér annars konar vörn við kuldanum, fitu.
  • Selir eru miklir sundkappar og geta verið í kafi um 20-30 mínútur í einu án þess að koma upp og anda.

Landselir - Nánari upplýsingar

Talið er að selir hafi eitt sinn lifað á landi og það landspendýr sem þeir eru skyldastir er hundurinn. Þeir eru taldir hafa verið eitt og sama dýrið fyrir milljónum ára en síðan hafi þróunin farið á þá leið að leiðir skildu. Má styðja þessar röksemdir með því að horfa á útlimi selanna, hreifana, en ef vel er að gáð má sjá leifar af tám á hreifunum.

Selir þola vel að vera á þurru landi í töluverðan tíma. Sem dæmi þegar urturnar kæpa og safnast þá saman í látrunum. Einnig dvelja selir á þurru landi í um tvær vikur að sumrinu til þegar þeir fara úr hárum og hafa alveg feldskipti.

Stofnstærð

Árið 1980 var selastofni landsela áætlaður vera um 45.000 dýr en á 9. áratugnum rýrnaði stofninn að miklu leyti vegna veiða. Voru veidd allt að 6-7.000 dýr árlega og þá aðallega kópar. Til samanburðar má nefna að árið 1997 voru veiddir tæplega 2.000 selir.

Fækkun landsela má ekki einungis rekja til ofveiði heldur hafa fleiri þættir þar áhrif á sem dæmi fæðuframboð. Selir eru mikið fyrir smávaxna fiska og ungviði fiska svo sem smáþorsk, smáufsa og botnlæga fiska, einnig veiðir hann sér til matar töluvert af sviflægum fiskum líkt og síld og loðnu.

Fjölskylduform

Landselir safnast í hópa á stöðum sem eru heppilegir til þess að leggjast upp. Það kallast látur. Fjöldi sela í látrum er breytilegur. Bestu afmörkuðu látrin eru í árósum. Selirnir rífast um rými í látrunum og brimlarnir berjast um mökunarrétt við urturnar.

Álitið er að fjölkvæni ríki en erfitt er um það að segja þar sem mökun fer fram í sjónum. Urta kæpir einum kópi að vori eftir 8-10 mánaða meðgöngu. Þegar kóparnir koma í heiminn líkjast þeir fullorðnu selunum í sköpulagi. Þeir fæðast í gráum hárum en kasta hvítum fósturhárum í móðurkviði.

Brimlar verða kynþroska um 5-6 ára en urtur geta orðið kynþroska um 3ja ára aldurinn.

Köfun

Landselir geta kafað töluvert lengi í einu án þess að koma að yfirborði til að ná í súrefni. Þannig er talið að þeir geti kafað í 20-30 mínútur í einu og á þeim tíma geta þeir farið á allt að 100 metra dýpi. Þegar svo djúpt er komið notast selurinn við veiðihár sín við veiðar og skynjar þannig hreyfingu í vatninu því birtan er lítil sem engin.

Selir sofa í kafi og með ákveðnu millibili fljóta þeir (í svefni) upp að yfirborðinu og anda. Fullir af súrefni, í vöðvunum líka, sökkva þeir svo aftur og halda áfram að hvílast.

Smellið á myndina hér að neðan til að sjá fleiri myndir af selum.

Kobba og afkvæmi

Nýkæptur kópur ásamt móður sinni.

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Maí 2013
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  
 

Vefkönnun

Hvað heita kýr Fjölskyldu- og húsdýragarðsins


 


Leturstærð: