Hreindýr

7.9.2004

Hreindýr

Basthúð flagnar af hornum

Fjölskyldugerð: tarfur, simla (kýr) og kálfur.
Þyngd: tarfur 160 - 240 kg. og kýr 80 - 100 kg.
Fengitími: september-október.
Meðgöngutími: 7 ½ mánuður.
Fjöldi afkvæma: 1 en afar sjaldan 2 og engin tilvik þekkt hér á landi.
Nytjar: kjöt, horn og skinn.

 

 

 

 

 

Stiklur um Hreindýr

  • Hreindýr voru flutt til landsins á seinni hluta 18. aldar. Í vetrarstofninum eru nú um 3.000 fullorðin dýr og eru aðalheimkynni þeirra hér á landi á Austurlandi.
  • Öll hreindýr fella hornin einu sinni á ári nema 2-4% kúnna sem eru kollóttar. 
  • Hreindýr eru með mjög skjólgóðan feld og eins og hjá refum eru hárin hol að innan sem einangrar vel.
  • Hreindýr eru grasbítar. Þeirra uppáhald eru fléttur og skófir, auk þess finnast þeim sveppir lostæti.


Íslensk hreindýr - Nánari upplýsingar

Ekki gekk áfallalaust að flytja inn hreindýrin á sínum tíma. Gerðar voru fjórar tilraunir og tókst loks vel í þeirri síðustu. Hreindýrin komu frá Noregi og Finnlandi. Upphaflegur tilgangur með hreindýrainnflutningi var að efla íslenskan landbúnað.

Átti þá að stunda hreindýrabúskap að hætti hjarðmanna á norðurslóðum. En líkt og komið hefur fram náðu hreindýrin einungis að draga fram líf sitt á vissum hluta landsins, þ.e. á norðausturhluta landsins og þar finnst nóg af fléttum, skófum og fjallagrösum. Var þá búið að flytja inn hreindýr á nánast alla landshluta hér þar á meðal til Vestmannaeyja! 

Hjarðdýr

Hreindýrin eru það sem kallast hjarðdýr, það er þau lifa í hjörðum og þar ræður tarfurinn ríkjum á fengitíma. Þá er hann með nokkurs konar kvennabúr og leggur mikla áherslu á að vernda hjörð sína fyrir öðrum törfum.

Algengt er að ungir kynþroska tarfar flakki um og reyni að næla sér í kýr úr öðrum hjörðum. Á meðan fengitíma stendur fer langmestur tími og orka tarfsins í að vernda hjörð sína og þá getur jafnvel komið fyrir að þeir láti lífið vegna næringarskorts.

Hornin

Hreindýr eru af hjartarætt og eru þau einu dýrin þeirrar ættar þar sem bæði kynin eru hyrnd. Hornin á fullorðnum dýrum eru mjög stór miðað við horn annarra hjartardýra. Þau vaxa árlega og eru þá klædd floskenndri húð, er nefnist basthúð, sem er mjög æðarík. Þegar hornin eru fullvaxin þá flagnar þessi húð af og ekki er óalgengt að sjá hreindýr éta þessa húð þar sem hún er full af næringarefnum. Tarfarnir fella hornin í nóvember-desember, geldar kýr og ungir tarfar í janúar-mars en kelfdar kýr ekki fyrr en eftir burð í maí. Til viðbótar að vera jórturdýr sem gjörnýta fæðuna þá endurnýta hreindýrin hornin sín, naga þau og fá úr þeim kalk. 

Feldur hreindýra

Hreindýrin eru með skjólgóðan og hlýjan feld og eru hárin hol að innan sem einangrar vel. Þessi holu hár þekja ekki allan líkama hreindýranna heldur einungis á þeim svæðum sem helst þurfa hlýju. Af þeim völdum eru hreindýrin hér oftast úti við og fara einungis inn í hús til að ná í fæðu og einstaka sinnum til að komast í skugga þegar of heitt er í veðri. Snoppa hreindýranna er alveg loðin og því tilvalin til þess að krafsa upp fæðu í gegnum þykkt snjólag án þess að valda þeim óþægindum. 

Veiðar og nýtni:

Á hverju ári fer fram talning á hreindýrum til þess að áætla stofnstærð þeirra. Út frá þeirri talningu er síðan ákveðið hversu mörg dýr má veiða það árið. Árið 2011 voru gefin út alls 1001 veiðileyfi, 580 kýr en 421 tarfar en reynt er að halda vetrarstofnstærðinni í  3.000 - 4.000 dýrum. Til samanburðar má geta að árið 2007 voru gefin út 1137 leyfi, 577 á kýr en 560 á tarfa.
Áður fyrr var kjötið af hreindýrunum yfirleitt saltað en stundum reykt og þótti geymast vel. Allur nýtanlegur innmatur var líka hirtur. Feldirnir voru nýttir í hempur og treyjur, ofan á rúm og sem hnakksæti. Úr hornunum var smíðað eitthvað smálegt líkt og uglur, höldur, klyfberaklakki, tóbaksdósir og nálhús. Nýlega er farið að hefja framleiðslu á flíkum, húfum, töskum og margt fleira úr hreindýraskinni og minjagripum úr hreindýrahornum. Ekki þarf að minnast á hreindýrakjötið sem helst má finna á jólahlaðborði landans, sem sagt einstaklega ljúffeng og verðmæt afurð villta stofnsins hér á landi.

Tenglar um hreindýr

Náttúrustofa Austurlands - sér um vöktun og rannskóknir á hreindýrum.

Veiðistjórnunarsvið Umhverfisstofnunar - sér um nýtingu dýranna. 

www.hreindyr.is

http://www.nat.is/Spendyr/hreindyr.htm

 

Smellið á myndina hér að neðan til að sjá fleiri myndir af hreindýrum:

Hreinkýr að vetri.

Hreinkýr að vetri.

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
 

vefkönnun

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum á sumrin?


 


Leturstærð: