Umhverfisstefna

Stefnt að vistvænni garði.

Básar hreinsaðir í fjósinuÞað er stefna Fjölskyldu- og húsdýragarðsins að velja síður vélknúin leiktæki, heldur leiktæki sem eru umhverfisvæn og endurnýtanleg. Þannig er reynt að minnka notkun bensínbíla með notkun rafmagnsbíla, hjóla og gangandi umferðar í starfsemi garðsins. Sum leiktækin sem eru vélknúin eru með rafgeyma, s.s. ökuskólabílar, rafmagnslest og klessubátar.

Það er stefna Reykjavíkurborgar og Fjölskyldu- og húsdýragaðsins að minnka sorpmagn og auka hluta endurnýtingar og endurvinnslu. Frá því að borgaryfirvöld buðu upp á sérstaka móttöku á pappír var sú flokkun tekin upp á staðnum. Auk þess eru flokkaðar fernur , járn, gúmmí, gosflöskur og dósir. Í veitingahúsi er umbúðanotkun haldið í lágmarki, þ.e. plastumbúðum. Um 12 tonn af lífrænum úrgangi falla til mánaðarlega í FJölskyldu- og húsdýragarðinum. En það er einungis úrgangur frá útihúsunum.



 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
 


vefkönnun

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum á sumrin?


 


Leturstærð: