Störf í boði

23.2.2010

Grýlur malla seiði

Sumarstörf í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum árið 2010

ATHUGIÐ að einungis er hægt að sækja um sumarstörf í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum inni á vefsvæði Rafrænnar Reykjavíkur www.reykjavik.is. Umsóknafrestur er frá og með 1.mars til og með 6. apríl 2010. Umsækjendur þurfa að vera að að lágmakri 17 ára á árinu, þ.e.fæddir árið 1993 eða fyrr.           

Um öll sumarstörfin gildir að þau eru unnin í vaktavinnu. Vaktir eru mismunandi eftir störfum en fastur vinnutími lendir í öllum tilfellum innan tímabilsins frá 8:00 til 19:00. Gera má ráð fyrir töluverðri helgarvinnu innan vaktahringsins. Árið 2010 munu flest sumarstörf vera í 80% starfshlutfalli. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar við Starfsmannafélag Reykjavíkur og eru grunnlaun almennt tengd launaflokki 119. Heildarlaun eru ögn mismunandi eftir líf- og starfsaldri starfsmanna auk þess sem vaktaálag sem leggst ofan á grunnlaunin er breytilegt eftir störfum og vaktafyrirkomulagi. Ráðningatímabilið er frá 27. maí og fram til 15. ágúst 2010.

Veitingasala.

Starfsmenn veitingasölu sjá um afgreiðslu bæði í kaffihúsi og í sölubúð garðsins auk þess að selja varning á svæði garðsins ef þess gerist þörf. Þeir þurfa að geta séð um létta matreiðslu svo sem að smyrja samlokur, baka vöfflur o.þ.h. Þeir bera á borð, taka af borðum, vaska upp og sinna almennum þrifum í veitingahúsi og sölubúð.

Fiskasafn og Vísindaveröld.

Starfsfólk í Fiskasafni og Vísindaveröld sér um að fræða gesti um fiskana í safninu og aðstoða fólk við að leysa þrautir og verkefni og vekja áhuga þess á veröld sem tengist vísindum. Þeir fóðra fiskana og halda öllum búrum og tækjum hreinum og í góðu standi.

Miða- og minjagripasala og símavarsla.

Starfsmenn sjá um að selja fólki aðgang, skemmtimiða og minjagripi, auk þess að sjá um símavörslu garðsins og veita gestum almennar upplýsingar.

Dýrahirðing.

Vinna með dýrahirðum að ummönnun dýra, sjá um þrif í útihúsum, annast fóðrun og snyrtingu dýra ásamt því að sinna auglýstri dagskrá í Húsdýragarðinum og upplýsingaskyldu til gesta. Leiktækjaeftirlit Starfsmenn við leiktækin sjá um að leiðbeina gestum að nota leiktækin rétt, að vel sé með þau farið og að öryggisreglum sé fullnægt við notkun þeirra. Einnig fylgjast þeir með að tækin starfi eðlilega og séu þrifaleg. 

Leiktækjaeftirlit

Starfsmenn við leiktækin sjá um að leiðbeina gestum að nota leiktækin rétt, að vel sé með þau farið og að öryggisreglum sé fullnægt við notkun þeirra. Einnig fylgjast þeir með að tækin starfi eðlilega og séu þrifaleg.

 

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
 


vefkönnun

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum á sumrin?


 


Leturstærð: