Fréttir
Sjávardýrasafn með dagskrálið
Sjávardýrasafnið verður, líkt og í fyrra, með krabbaklapp á Hátíð hafsins nú um helgina. Hægt verður að komast í snertingu við sjávarhryggleysingja á laugardeginum milli 14 og 16 niðri á Miðbakka. Ýmis dýr verða til sýnis, meðal annars krabbar, krossfiskar og ígulker. Safnið tók þátt í fyrsta skipti í Hátíð hafsins á sjómannadeginum í fyrra og tókst það vonum framar. Áhugi fólks var mikill og var meðal annars spurt um ígulker til átu enda þykja þau lostæti sumstaðar í heiminum.
Við mælum með því að koma og kíkja á krabbana um helgina, enda hefur öll fjölskyldan gaman af þessu og fjölbreytt dagskrá í boði á Hátíð hafsins.
Á meðfylgjandi myndum má sjá ígulker sem hefur fest á sig tómar skeljar. Þetta er skemmtilegt dæmi um tilviljunarkenndan heim náttúrunnar.

