Fréttir

Krakkar að skoða fiska á M12 deginum
« fyrri
1 2

21.5.2006

Mikið var um að vera á M12- deginum á laugardaginn en um 13.000 manns komu í garðinn. Nýr og stærri fallturn var tekinn í notkun og flykktist fólk í hann til þess að prófa, enda var frítt í tækin í boði M12. Sjávardýrasafnið og vísindaveröldin voru ekki síður vinsæl. Söfnin fylltust af fólki sem vildi skoða nánar lífverur sjávar í kringum Ísland og kynna sér veröld vísindanna. Snertiker safnsins er komið út og vakti það mikla lukku hjá yngri kynslóðinni sem nýtti sér óspart að komast í snertingu við dýrin, enda ekki á hverjum degi sem hægt er að halda á lifandi krossfisk og klappa ígulkeri og kröbbum. Á meðfylgjandi mynd má sjá krakka fulla af áhuga við að skoða sjávardýr safnsins.

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Feb. 2012
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
 

vefkönnun

Hvaða dýr af eftirfarandi dýrum er í uppáhaldi hjá þér?


 


Leturstærð: