Fréttir
Safnið stækkar
Væntanlegt er nýtt búr í sjávardýrasafnið er það byggt í samstarfi við Orkuveitu Reykjavíkur. Orkuveitubúrið verður a.ö.l. stærsta frístandandi fiskabúr landsins. Búrið er sexhyrnt, 3 metrar í þvermál, tveggja metra hátt og rúmar yfir 10.000 lítra af sjó. Búrið er smíðað úr steyptu Acryl plasti eða plexygleri sem er hvorki meira né minna en 50mm þykkt. Tómt vegur búrið um 1200 kg, en væri það úr gleri af sömu þykkt vægi það u.þ.b. 5 sinnum meira eða um 6 tonn. Búrið er kærkomin viðbót við safnið í garðinum sem er stöðugt í þróun. Þá kemur búrið sér sérlega vel við að hýsa stóra fiska eins og háfa. Á myndinni er verið að líma saman tvo 160 kg plastfleka sem mynda tvær hliðar af sex í búrinu.

