Fréttir

Sjóferð um sundin
« fyrri
1 2 3

Sjóferð um sundin

4.5.2006

Í dag, 3. maí hófst námskeiðið Sjóferð um sundin, en þetta vinsæla námskeið fyrir nemendur 6. bekkjar hefur nú verið í boði á annan áratug. Frá og með árinu 2005 varð námskeiðið samstarfsverkefni sjávardýrasafnsins í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, Faxaflóahafna sf og Háskóla Íslands. Rúmlega 50 hópar eru skráðir til þátttöku í ár, alls um 1000 nemendur. Siglt er frá Miðbakka Reykjavíkurhafnar með bátnum Skúlaskeiði sem áður var nótabátur og síðar Viðeyjarferja. Í ferðunum er saga Reykjavíkurhafnar kynnt og lífríki sjávar kannað. Leiðbeinendur eru þeir Logi Jónsson dósent við líffræðiskor HÍ og Þorkell Heiðarsson fiskifræðingur við sjávardýrasafnið. Að námskeiði loknu fær hver bekkur viðurkenningarskjal, vandað námsefni um lífríki sjávar og að sjálfögðu miða í Fjölskyldu og húsdýragarðinn.

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Feb. 2012
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
 

vefkönnun

Hvaða dýr af eftirfarandi dýrum er í uppáhaldi hjá þér?


 


Leturstærð: