Fréttir
Sportkafarafélag Íslands á í góðu samstarfi við okkur hér í garðinum og hafa félagsmenn nú komið færandi hendinni með margs konar lífverur í sjávardýrasafnið. Má þar nefna Hagalfiska, sæsól, ígulker, sæbjúgu, bertálkna og ýmsa krabba. Við þökkum félaginu að sjálfsögðu fyrir þennan rausnarskap og vonum að framhald verði á þessu góða samstarfi.

