Fræðsla
Námskeið veturinn 2008-2009.
Námskeiðin eru kennd í samstarfi við Náttúruskóla Reykjavíkur sem bíður upp á verkefnið Flóð og fjara.
Lífverur sjávar og vatna fyrir 4.-5. bekk
Nemendum eru kynntir helstu flokkar lífvera sem lifa í sjó og vatni og áhersla er lögð á aðlögun þeirra að því umhverfi. Algengum tegundum fiska og hryggleysingja við Íslandsstrendur eru gerð skil. Þá er í námskeiðinu sérstök kynning á frosk- og skriðdýrum, sem eru þær fylkingar dýraríkisins sem ekki finnast í íslenskri náttúru. Að lokum eru lifandi dýr snert og skoðuð. Þetta námskeið opnar nýjan og forvitnilegan heim fyrir nemendum 4.-5. bekkjar. Umsjónarmaður námskeiðsins er Þorkell Heiðarsson M.Sc líffræðingur. Námskeiðið er í boði á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum klukkan 9:00 til 11:30. Kostnaður er 650 krónur á nemanda.

Brettum upp ermarnar
Námskeiðið er rúmlega klst löng heimsókn í Sjávardýrasafnið. Umsjónarmaður safnsins tekur á móti hópnum og kynnir honum nöfn og einkenni helstu sjávarlífveranna. Að því loknu fá þátttakendur sjálfir að bretta upp ermarnar og handleika sjávarlífverur í sérstökum snertikerjum. Þetta er spennandi námskeið fyrir yngstu börnin sem eru oft að fá sín fyrstu kynni af sjávarlífverum. Hámarksfjöldi er 20 börn og kostar hvert námskeið 4000 kr.

Sjóferð um sundin
Þetta sívinsæla námskeið er í boði Faxaflóahafna sf. og stendur nemendum 6. bekkjar til boða líkt og mörg undanfarin ár. Á námskeiðinu er saga Reykjavíkurhafnar kynnt og að því loknu siglt um sundin blá þar sem nemendum gefst kostur á að virða Reykjavík fyrir sér af hafi. Að lokum er svo sjávarlífverum safnað til nánari skoðunar um borð. Hámarksfjöldi í ferð er 30 nemendur og hefur reynslan sýnt að sjóferðin er minnisstæð lífsreynsla fyrir flesta nemendur. Kennarar eru Logi Jónsson dósent við HÍ og Þorkell Heiðarsson MS.c líffræðingur

Pantanir
Tekið er á móti bókunum í síma 5757 800 en einnig á netfanginu unnur@husdyragardur.is . Reynsla undanfarinna ára sýnir að best er að panta tímanlega því hér gildir “fyrstur kemur, fyrstur fær” og á það einkanlega við um Vinnumorgna.
Hlakka til að heyra frá ykkur.
Unnur Sigurþórsdóttir
Deildarstjóri fræðsludeildar
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn.
Sími: 5757 800 Fax: 5757 801
Netfang: unnur@husdyragardur.is
Heimasíða: www.mu.is
Gjaldskrá fyrir fræðslustarf Fjölskyldu- og húsdýragarðsins.
Fyrir grunnskóla Reykjavíkur
-
Aðgangur, hópar á eigin vegum á skólatíma Ókeypis
-
Leiðsagnir fyrir alla aldurshópa 5.000 kr. hóp / 1 klst.
-
Dýrafræðsla fyrir 3. bekk 6.500 kr. hóp / 1,5 klst
-
Dýr í sjó og vötnum fyrir 4. og 5. bekk 8.000 kr. hóp / 2 klst
-
Vinnumorgunn fyrir 6. bekk 10.000 kr. hóp / 4 klst
-
Villt íslensk spendýr fyrir 8. til 10. bekk 5.000 kr. hóp / 1 klst
-
Sjóferð um sundin fyrir 6. bekk 500 kr. mann / 2 klst Ferðirnar eru farnar seinni hluta vorannar, nánar kynnt síðar.
Hópar miðast við 30 nemendur að hámarki. Hægt er að taka á móti tveimur hópum nema í Vinnumorgna, Dýr í sjó og vötnum og Sjóferðir um sundin, þá kemur einn hópur í einu.
Fyrir grunnskóla utan Reykjavíkur
-
Aðgangur, hópar á eigin vegum Aðgangseyrir skv. gjaldskrá
-
Leiðsagnir fyrir alla aldurshópa 5.000 kr. hóp / 1 klst. + aðgangseyrir
-
Dýrafræðsla fyrir 3. bekk 6.500 kr. hóp / 1,5 klst + aðgangseyrir
-
Dýr í sjó og vötnum fyrir 4. og 5. bekk 8.000 kr. hóp / 2 klst + aðgangseyrir
-
Vinnumorgunn fyrir 6. bekk 10.000 kr. hóp / 4 klst + aðgangseyrir
-
Villt íslensk spendýr fyrir 8. til 10. bekk 5.000 kr. hóp / 1 klst + aðgangseyrir
-
Sjóferð um sundin fyrir 6. bekk 500 kr. mann / 2 klst + aðgangseyrir Ferðirnar eru farnar seinni hluta vorannar, nánar kynnt síðar.
Hópar miðast við 30 nemendur að hámarki. Hægt er að taka á móti tveimur hópum nema í Vinnumorgna, Dýr í sjó og vötnum og Sjóferðir um sundin, þá kemur einn hópur í einu.

