Sjávardýrasafn

Opnað árið 2004

Sjávardýrasafnið í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

Fyrsti áfangi að sjávardýrasafni var opnaður í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum af borgarstjóra Reykjavíkur Steinunni Valdísi Óskarsdóttur þann 1. desember 2004.

Sjávardýrasafnið er staðsett í tjaldi við selalaugina ásamt Vísindaveröldinni.

Nú eru í safninu 5 stór fiskabúr, tvö rúma 2000 lítra eitt 5000 lítra auk 1700 lítra sexhyrnings og það stærsta 10.000 lítra sem byggt var í samstarfi við Orkuveitu Reykjavíkur árið 2006 og er að öllum líkindum stærsta frístandandi fiskabúr landsins.

Alls eru því í safninu rúmlega 20 rúmmetrar af sjó (10.000 lítrar). Sjórinn í safninu kemur úr borholu Orkuveitu Reykjavíkur við Sæbraut og var hann var leiddur inn í Laugardalinn sumarið 2004.

Krakkar að skoða1

 

Hvað er í fiskabúrunum?

Í búrunum er hverju sinni að finna helstu nytjafiska Íslandsmiða auk fjölda annarra sjávarlífvera sem finnast hér við land. Sífellt er verið að afla nýrra dýra og safnið því síbreytilegt. Dýrin í búrunum koma úr ýmsum áttum, frá sjómönnum, starfsmönnum garðsins og úr eldisstöðvum víðsvegar um landið svo dæmi séu nefnd.

 

 

Fraedslustarf1

 

Fræðslustarf

Sjávardýrasafnið bíður strax í upphafi upp á skipulagt fræðslustarf fyrir leik- og grunnskólastigið. Í þessu starfi er áherslan lögð á að kynna helstu nytjategundirnar, fjörulífverur og síðast en ekki síst snertikennslu þar sem nemendur fá tækifæri til þess að handfjatla sjávarlífverur. Sjá hér

 

 

 

Cyclopterus lumpus

 

Myndasafn

Sjávardýrasafnið hefur samið við myndlistamanninn Jón Baldur Hlíðberg um afnot af myndum hans af sjávarlífverum í safninu. Þú getur kynnt þér verk hans á vefnum hans www.fauna.is

 

 

Að lokum....

Vonum að þessi viðbót við Fjölskyldu- og húsdýragarðinn verði gestum og gangandi gleðiefni en stefnt er að því að þessi hluti vaxi og dafni í framtíðinni með góðra manna hjálp.

 

Verið velkomin!

 

 

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Júní 2013
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30            
 

Vefkönnun

Hvað heita kýr Fjölskyldu- og húsdýragarðsins


 


Leturstærð: