Námskeið

Spennandi kostur í skólastarfi

17.8.2009

DÝRAFRÆÐSLA.

Fyrir nemendur í 3. bekk.

Í flestum grunnskólum er fjallað um húsdýrin í 3. bekk. Þess vegna bjóðum við upp á dýrafræðslu fyrir þennan aldurshóp þar sem áhersla er lögð á skynjun og skynfæri, ásamt því að fjallað er um lifnaðarhætti dýranna. Þetta námskeið tekur einn og hálfan klukkutíma og er í boði á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Bæði er farið um leiðsögn um garðinn og ýmsir munir skoðaðir í Hafrafellssafninu. Sjá gjaldskrá.


VINNUMORGUNN.

Fyrir nemendur í 6. bekk.

Í vinnumorgni fá nemendur tækifæri til að koma og taka þátt í umhirðu dýranna og fá um leið ítarlega fræðslu um dýrin og landbúnaðarstörf. Vinnumorgnar verða alla þriðjudaga og fimmtudaga í vetur. Námskeiðið sem er lítillega breytt frá fyrri árum tekur nú þrjá tíma í stað fjögurra undanfarin ár. Nemendur mæta klukkan 07:45 og er námskeiðinu lokið um klukkan 11:00. Þetta námskeið hefur staðið nemendum til boða frá 1990 og hefur verið vinsælasta námskeiðið í garðinum frá þeim tíma. Hægt er að panta kakó og vöfflur og kostar það aukalega 250 krónur á mann. Athugið að taka þarf sérstaklega fram ef óskað er eftir vöfflum og kakói þegar pantað er eða tilkynna það í síðasta lagi viku fyrir heimsókn. Sjá gjaldskrá.


VILLT ÍSLENSK SPENDÝR.

Fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk.

Spennandi námskeið fyrir elstu nemendur grunnskóla. Á þessu námskeiði er farið ítarlega í lifnaðarhætti og atferli villtra íslenskra spendýra á Íslandi. Námskeiðið tekur um klukkutíma. Sjá gjaldskrá .


DÝR Í SJÓ OG VÖTNUM.

Fyrir nemendur í 4. og 5. bekk.

Á þessu námskeiði kynnast nemendur lífverum og lífríki sjávar og vatna. Nemendur fá tækifæri til að skoða og snerta sjávardýr. Auk fræðslu um íslenskar sjávarlífverur er öðrum vatnalífverum einnig gerð skil, þar á meðal fylkingum dýra sem ekki finnast hér á landi eins og froskdýra og skriðdýra. Nemendur námskeiðsins fá verkefni sem unnin eru á staðnum eða í skólastofu í kjölfar heimsóknar. Námskeiðið er í boði á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Sjá gjaldskrá

LEIÐSAGNIRUM HÚSDÝRAGARÐINN

Fyrir alla.

Allir aldurshópar geta komið í garðinn og fengið leiðsögn sem tekur u.þ.b. klukkustund. Ef verið er að taka eitthvað ákveðið fyrir í skólanum s.s. sauðkindina, fugla og þess háttar er um að gera að setja sig í samband við fræðsludeildina. Leiðsögn og snertikennsla í Sjávardýrasafninu stendur einnig öllum aldurshópum til boða. Sjá gjaldskrá.


Leiðsögn fyrir kennara.

Dagana 2. og3. september klukkan 15:00 verður kennurum í grunnskólum boðið að koma í leiðsögn um garðinn. Þetta er upplagt fyrir þá kennara sem vilja kynna sér það sem garðurinn hefur upp á að bjóða og fá sér kaffisopa með kollegum sínum. Þeir kennarar sem áhuga hafa að koma í þessa leiðsögn eru beðnir um að senda tölvupóst á unnur@husdyragardur.is í síðasta lagi daginn fyrir heimsókn.


Í gegnum árin hafa fræðslufulltrúar Fjölskyldu- og húsdýragarðsins verið iðnir við að svara þeim spurningum sem vakna hjá kennurum. Hjá okkur er að finna gagnlegar upplýsingar um þær dýrategundir sem í garðinum eru og um að gera fyrir kennara að notfæra sér það. Einnig erum við opnar fyrir hverjum þeim verkefnum sem kennurum dettur í hug að vinna í garðinum með nemendum sínum.


Pantanir

Tekið er á móti bókunum í síma 411 5900 en einnig á netfanginu unnur@husdyragardur.is. Reynsla undanfarinna ára sýnir að best er að panta tímanlega því hér gildir “fyrstur kemur, fyrstur fær” og á það einkum við um Vinnumorgna.

Gjaldskrá fyrir fræðslustarf Fjölskyldu- og húsdýragarðsins.

Fyrir grunnskóla Reykjavíkur

  • Aðgangur, hópar á eigin vegum á skólatíma Ókeypis
  • Leiðsagnir fyrir alla aldurshópa 5.000 kr. hóp / 1 klst.
  • Dýrafræðsla fyrir 3. bekk 6.500 kr. hóp / 1,5 klst
  • Dýr í sjó og vötnum fyrir 4. og 5. bekk 7.500 kr. hóp / 2 klst
  • Vinnumorgunn fyrir 6. bekk 8.500 kr. hóp / 3 klst
  • Villt íslensk spendýr fyrir 8. til 10. bekk 5.000 kr. hóp / 1 klst
  • Sjóferð um sundin fyrir 6. bekk 500 kr. mann / 2 klst Ferðirnar eru farnar seinni hluta vorannar, nánar kynnt síðar.

Hópar miðast við 30 nemendur að hámarki. Hægt er að taka á móti tveimur hópum í einu nema í Vinnumorgna, Dýr í sjó og vötnum og Sjóferðir um sundin, þá kemur einn hópur í einu.

Fyrir grunnskóla utan Reykjavíkur

  • Aðgangur, hópar á eigin vegum á skólatíma Aðgangseyrir
  • Leiðsagnir fyrir alla aldurshópa 5.000 kr. hóp / 1 klst. + aðgangseyrir
  • Dýrafræðsla fyrir 3. bekk 6.500 kr. hóp / 1,5 klst + aðgangseyrir
  • Dýr í sjó og vötnum fyrir 4. og 5. bekk 7.500 kr. hóp / 2 klst + aðgangseyrir
  • Vinnumorgunn fyrir 6. bekk 8.500 kr. hóp / 3 klst + aðgangseyrir
  • Villt íslensk spendýr fyrir 8. til 10. bekk 5.000 kr. hóp / 1 klst + aðgangseyrir
  • Sjóferð um sundin fyrir 6. bekk 500 kr. mann / 2 klst Ferðirnar eru farnar seinni hluta vorannar, nánar kynnt síðar.

Hópar miðast við 30 nemendur að hámarki. Hægt er að taka á móti tveimur hópum í einu nema í Vinnumorgna, Dýr í sjó og vötnum og Sjóferðir um sundin, þá kemur einn hópur í einu.

 



 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Maí 2013
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  
 

Námskeið


Vefkönnun

Hvað heita kýr Fjölskyldu- og húsdýragarðsins


 


Leturstærð: