Fræðsludeild
Vetrarnámskeið 2005-2006- Skráning í síma 57 57 800.
DÝRAFRÆÐSLA. Fyrir nemendur í 3. bekk. Í flestum grunnskólum er fjallað um húsdýrin í 3. bekk. Þess vegna bjóðum við upp á dýrafræðslu fyrir þennan aldurshóp þar sem áhersla er lögð á skynjun og skynfæri, ásamt því að fjallað er um lifnaðarhætti dýranna. Þetta námskeið tekur um tvo klukkutíma og er í boði á mánudögum og föstudögum kl. 09:30 og 13:30. Kostnaður á nemanda er 600 krónur.
VINNUMORGUNN. Fyrir nemendur í 6. bekk. Í vinnumorgni fá nemendur tækifæri til að koma og taka þátt í umhirðu dýranna og fá um leið ítarlega fræðslu um dýrin og landbúnaðarstörf. Vinnumorgnar verða alla þriðjudaga og fimmtudaga í vetur. Námskeiðið tekur rúma fjóra klukkutíma, nemendur mæta klukkan 07:45 og er heimsókninni lokið um klukkan 12:00. Þetta námskeið hefur staðið nemendum til boða frá 1990 og hefur verið vinsælasta námskeiðið í garðinum frá þeim tíma. Kostnaður á hvern nemanda er 750 krónur en einnig er hægt að fá kakó og vöfflu og kostar námskeiðið þá 1000 krónur á hvern nemanda. Athugið að taka þarf sérstaklega fram ef óskað er eftir vöfflum og kakói þegar pantað er eða tilkynna það í síðasta lagi daginn fyrir heimsókn skólans.
VILLT ÍSLENSK SPENDÝR. Fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk. Spennandi námskeið fyrir elstu nemendur grunnskóla. Á þessu námskeiði verður farið ítarlega í lifnaðarhætti og atferli villtra íslenskra spendýra á Íslandi. Námskeiðið tekur um tvo klukkutíma og er í boði alla þriðjudaga og fimmtudaga klukkan 10:00. Kostnaður er 600 krónur á nemanda.
NÝTT-NÝTT DÝR Í SJÓ OG VÖTNUM. Fyrir nemendur í 4. og 5. bekk. Á þessu nýja námskeiði kynnast nemendur lífverum og lífríki sjávar og vatna. Tilkoma sjávardýrasafns garðsins gefur nemendum mikla möguleika á að skoða og snerta sjávardýr og eru þeir möguleikar nýttir í þessu námskeiði með snertikennslu. Auk fræðslu um íslenskar sjávarlífverur er öðrum vatnalífverum einnig gerð skil, þar á meðal fylkingum dýra sem ekki finnast hér á landi eins og froskdýra og skriðdýra. Nemendur námskeiðsins fá verkefni sem unnin eru á staðnum sem og verkefni sem vinna má í skólastofu í kjölfar heimsóknar. Námskeiðið var þróað í samstarfi við kennara í Laugarnesskóla. Umsjónarmaður námskeiðsins er Þorkell Heiðarsson M.Sc líffræðingur. Námskeiðið er í boði á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum klukkan 9:00 til 11:30. Kostnaður er 650 krónur á nemanda.
LEIÐSÖGN UM HÚSDÝRAGARÐINN Fyrir alla. Allir aldurshópar geta komið í garðinn og fengið leiðsögn sem tekur u.þ.b. klukkustund. Ef verið er að taka eitthvað ákveðið fyrir í skólanum s.s. sauðkindina, fugla og þess háttar er um að gera að setja sig í samband við fræðsludeildina. Leiðsögn og snertikennsla í Sjávardýrasafninu stendur einnig öllum aldurshópum til boða. Leiðsagnir kosta 4000 krónur á hvern hóp (hámarksfjöldi 30 manns) auk aðgangseyris. Aðgangseyrir er 350 krónur fyrir 6-12 ára og 450 krónur fyrir eldri. Hópafsláttur er 10 % og er veittur ef 10 eða fleiri koma saman og greitt er fyrir hópinn í einu lagi.
Leiðsögn fyrir kennara. Einstakt tækifæri. Dagana 6. og 8. september klukkan 15:00 verður kennurum í grunnskólum boðið að koma í leiðsögn um garðinn sér að kostnaðarlausu. Þetta er upplagt fyrir þá kennara sem vilja kynna sér það sem garðurinn hefur upp á að bjóða og fá sér kaffisopa með kollegum sínum. Gott væri ef þeir kennarar sem áhuga hafa á að koma í þessa leiðsögn myndu slá á þráðinn til okkar. Ef skóli tekur sig saman og vill ákveðinn tíma í leiðsögn endilega hafið samband sem fyrst.
Í gegnum árin hafa fræðslufulltrúar Fjölskyldu- og húsdýragarðsins verið iðnir við að svara þeim spurningum sem vakna hjá kennurum. Hjá okkur er að finna gagnlegar upplýsingar um þær dýrategundir sem í garðinum eru og um að gera fyrir kennara að notfæra sér það.


