Námskeið

Komdu hérna kiðlingur.

16.8.2011 : Grunnskólakennarar athugið

Fræðsludeild Fjölskyldu- og húsdýragarðsins býður upp á nokkur námskeið á komandi skólaári. Kennarar sem kjósa að koma á eigin vegum er bent á að garðurinn er opnaður klukkan 10:00 en þeir sem vilja þiggja leiðsögn eða mæta á eitthvert þeirra námskeiða sem í boði eru geta mætt fyrr. Kostnaður vegna heimsóknar á eigin vegum er engin fyrir nemendur og kennara í grunnskólum Reykjavíkur. Fyrir grunnskóla utan Reykjavíkur er kostnaðurinn 450* krónur á nemanda fyrir 5 til 12 ára og 540* krónur á nemanda fyrir 13 ára og eldri. *Miðast við hóp sem telur fleiri en 10 og allt sé greitt saman.

Starfsfólk Fjölskyldu- og húsdýragarðsins biður kennara og aðra sem koma með hópa í garðinn að brýna fyrir nemendum nauðsyn þess að umgangast dýr og gróður garðsins af nærgætni.

Lesa meira

 
Klapp á kollinn

12.4.2011 : Dýranámskeið fyrir 10-12 ára hressa krakka

Námskeiðið stendur 10–12 ára krökkum (f. 1999–2001) til boða í sumar. Á námskeiðinu vinna krakkarnir með dýr garðsins og námskeiðið því upplagt fyrir krakka sem áhuga hafa á dýrum almennt. Þá er einnig farið í skemmtilega umhverfisfræðslu, gerðar eru vísindatilraunir og undirstöðuatriði tálgunar kynnt fyrir krökkunum. Lesa meira
 
Sjóferð um sundin

11.4.2011 : Sjóferð um sundin

Í vor gefst nemendum miðstigs grunnskóla sem eru innan hafnarsamlags Faxaflóahafna kostur á að skella sér í skemmtilega og lærdómsríka Sjóferð um Sundin, sér að kostnaðarlausu, í boði Faxaflóahafna sf. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn annast framkvæmd námskeiðsins líkt og undanfarin ár.

Sjóferðirnar eru í boði frá 2. maí til 3. júní 2011 og verða þrjár ferðir á dag kl. 8:30, 10:00 og 11:30. 

 

Lesa meira
 
Kiðlingur knúsaður

21.9.2010 : Námskeið fyrir leikskóla

Gaman og fróðlegt getur verið fyrir leikskólanemendur að kíkja í heimsókn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn með kennurum sínum. Tvö námskeið, sérstaklega hugsuð fyrir leikskóla, eru í boði hjá fræðsludeild garðsins. Annars vegar námskeiðið "Hani, krummi, hundur, svín" þar sem húsdýrin okkar eru tekin fyrir og hins vegar "Brettum upp ermarnar" þar sem lífverur hafsins eru skoðaðar. Sjá frekari upplýsingar í "lesa meira".

Lesa meira
 
Guttormur fékk góða heimsókn.

10.4.2010 : Dýranámskeið 2010

Skráning á Dýranámskeið sumarsins 2010 hefst 12. apríl og fer fram á Rafrænni Reykjavík. Allar nánari upplýsingar um námskeiðin og skráningu má nálgast hér.  Athugið að námskeiðið er ætlað börnum fæddum 1998 til 2000. 
 
Sjóferð um sundin

4.3.2010 : Kennarar athugið

Líkt og undanfarin ár gefst nemendum í 6. bekk grunnskóla kostur á að skella sér í skemmtilega og lærdómsríka Sjóferð um Sundin í vor. Verkefnið er samvinnuverkefni Faxaflóahafna og sjávardýrasafns Fjölskyldu og Húsdýragarðsins. Sjóferðirnar eru í boði frá 3. maí til 4. júní 2010 og verða þrjár ferðir á dag kl. 8:30, 10:00 og 11:30. Sjá "lesa meira"

Lesa meira
 
Kiðlingur knúsaður

22.1.2010 : Spennandi námskeið fyrir leikskólanemendur.

Gaman og fróðlegt getur verið fyrir leikskólanemendur að kíkja í heimsókn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn með kennurum sínum. Tvö námskeið, sérstaklega hugsuð fyrir leikskóla, eru í boði hjá fræðsludeild garðsins. Annars vegar námskeiðið "Hani, krummi, hundur, svín" þar sem húsdýrin okkar eru tekin fyrir og hins vegar "Brettum upp ermarnar" þar sem lífverur hafsins eru skoðaðar. Sjá frekari upplýsingar í "lesa meira".

Lesa meira
 
Kiðlingur knúsaður

17.8.2009 : Fræðslustarf 2009-2010

Á komandi skólaári sem fyrri ár gefst grunnskólum kostur á að taka þátt í skemmtilegu fræðslustarfi í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Námskeið eru í boði fyrir öll stig grunnskólans og fræðslufulltrúar eru opnir fyrir nýjungum hafi kennarar séróskir varðandi verkefni eða nálgun á kennsluefni.  Sjá nánar í "lesa meira". Lesa meira
 
Sjóferð um sundin

4.5.2009 : Kennarar athugið

Líkt og undanfarin ár gefst nemendum í 6. bekk grunnskóla kostur á að skella sér í skemmtilega og lærdómsríka Sjóferð um Sundin í vor. Verkefnið er samvinnuverkefni Faxaflóahafna og sjávardýrasafns Fjölskyldu og Húsdýragarðsins. Sjóferðirnar eru í boði frá 4. maí til 5. júní 2009 og verða þrjár ferðir á dag kl. 8:30, 10:00 og 12:30.

Markmiðið með þessu verkefni er að gefa nemendum kost á að kynnast umhverfi Reykjavíkurhafnar og lífríki sjávar í Sundunum. Markmið í Íslandssögu, náttúrufræðum og lífsleikni falla vel að þessu verkefni. Sjá meira í "lesa meira"

Lesa meira

 
Drengur gripinn af kálfi

15.8.2008 : Fræðslustarf Fjölskyldu- og húsdýragarðsins

Sem fyrri ár býður Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn upp á spennandi kosti fyrir grunnskólanemendur sem vilja koma í fróðlegar heimsóknir ásamt kennurum sínum. Tekið er á móti bókunum í heimsóknir í síma 5757 800 eða á netfangið unnur@husdyragardur.is og gildir reglan fyrstur "kemur" fyrstur fær.    Lesa meira
 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Feb. 2012
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
 

Námskeið


vefkönnun

Hvaða dýr af eftirfarandi dýrum er í uppáhaldi hjá þér?


 


Leturstærð: