Fréttir

4.9.2009 : Vetraropnun

Opnunartíma garðsins hefur verið breytt yfir á vetrarfyrirkomulag, það er að segja nú er opið frá klukkan 10.00 til 17.00. Leiktæki sem þurfa starfsfólk við eru lokuð og verða lokuð fram á vor en eftir sem áður er hægt að leika sér á öðrum leiksvæðum innan garðsins. 
 
Stélfjaðrir að vaxa 06

27.11.2006 : Sigurörn frjáls á ný við Grundafjörð

Fjöldi fólks fylgdist með þegar Sigurbjörg Sandra bjargvættur Sigurarnar veitti honum frelsi á ný við Grundarfjörð sunnudaginn 26. nóvember. Örninn flaug í nokkrar mínútur eða allt þar til hann hvarf sjónum viðstaddra.  Nú er vonandi að honum vegni vel en það tekur við hjá honum  að finna sér maka.  Starfsfólk garðsins þakkar Sigurbjörgu og starfsmönnum Náttúrfræðistofnunnar Íslands samstarfið í þessu ævintýri.  Einnig íbúum Grundarfjarðar fyrir sýndan áhuga á erninum sem eflaust er um þessar mundir heiðursíbúi Grundarfjarðar.  Því miður náðum við engum myndum í ferðalaginu vestur en ef einhverjir hafa náð myndum af viðburðinum og gætu sent okkur þá væri það mjög vel þegið á netfangið unnur@husdyragardur.is
 
Hringekja

20.1.2006 : Cocoa Puffs lestin og hringekjan lokuð.

Cocoa Puffs lestin og hringekjan verða lokuð fram í miðjan febrúar í það minnsta. Viðgerðir standa nú yfir í hringekjunni og færð gerir það að verkum að ekki er hægt að keyra lestina um garðinn. Hestateyming er eftir sem áður í boði um helgar frá klukkan 14:00 til 14:30 og kostar hver ferð einn miða.  Við minnum á að opið er í garðinum alla daga frá klukkan 10:00 til 17:00 og dagskrána er að finna hér ofar á síðunni. 
 
Hringekja

11.11.2005 : Hringekja og Cocoa Puffs lest.

Eins og fram hefur komið áður hér á vefnum hafa flest leiktæki verið tekin inn yfir vetrarmánuðina. Framan af vetri voru þó flest tækjanna gangsett um helgar.  Nú er svo komið að veður setur okkur takmörk í þessu eins og svo mörgu öðru.  Þó er áfram reynt að halda hringekjunni og Cocoa Puffs lestinni gangandi frá klukkan 11:00 til 17:00 um helgar en eins og von er á getur færð á göngustígum garðsins hamlað ferðum lestarinnar.  Ein ferð í lestina og hringekuna kostar einn skemmtimiða.  Þá er einnig hægt að bregða sér á hestbak um helgar frá klukkan 14:00 til 14:30 og kostar ferðin einnig einn skemmtimiða.  Skemmtimiðar eru seldir innan garðsins og kostar hver miði 170 krónur en magnafsláttur er veittur.  Sjá hér neðst á síðunni.  Góða skemmtun!
 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
 

vefkönnun

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum á sumrin?


 


Leturstærð: