Fjölskyldugarður

Leiktækin í Fjölskyldugarðinum

15.6.2012

Leiktækin í Fjölskyldugarðinum eru nokkur og þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Í þau leiktæki sem kostar skemmtimiða í gilda einnig dagpassar.

  • Hringekjan er fyrir alla aldurshópa og í hana kostar einn skemmtimiða.
  • Lestin er einnig fyrir alla aldurshópa og í hana kostar einn skemmtimiða.
  • Í Krakkafossi (rugguskipinu) skulu börn lægri en 105 cm vera í fylgd fullorðinna.  Ein ferð kostar tvo skemmtimiða.
  • Í Fallturninn þurfa farþegar að hafa náð 110 cm hæð og kostar ferðin tvo skemmtimiða.
  • Í Þrumufleyg kostar hver leikur einn skemmtimiða.
  • Í Klessubátana komast tveir farþegar í hverja ferð og kostar 1 ferð í báti einn skemmtimiða.
  • Ekkert kostar í Litlu rafbílana sem eru fyrir 4 ára og yngri og eru á braut við Krakkafoss.
  • Ekkert kostar í Ökuskólann en þar þurfa ökumenn að hafa náð 5 ára aldri og vera lægri en 140 cm.
  • Ekkert kostar í Hjólabrautina en ef röð er í brautina eru hámark 2 hringir á mann.
  • Sumarið 2012 verða starfræktir svo kallaðir Vatnaboltar í garðinum.  Þar geta krakkar á öllum aldri gengið á vatni í Risabolta.  Um er að ræða tilraun með gestatæki á vegum einkaaðila sumarið 2012. Því gilda dagpassar og skemmtimiðar sem seldir eru á vegum FHG ekki í Vatnaboltana. Árskorthafar fá hins vegar 1 ferð innifalda í hverri heimsókn. Ein ferð í Vatnaboltana kostar 500 krónur og er greitt við boltana sem eru á Tjörninni í miðjum garðinum.
 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Maí 2013
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  
 

Vefkönnun

Hvað heita kýr Fjölskyldu- og húsdýragarðsins


 


Leturstærð: