Leikir

25.2.2005

Tenglar

Litabók dýranna

Orða- og litabók um dýrin

Minnisleikur

Vísindaveröld

tilraunir og tenglar

Snuddusagan

Kálfurinn Dropi með Guttormi.Einu sinni var lítill kálfur. Hann bjó í björtu fjósi með mömmu sinni og pabba og nokkrum öðrum kúm. Hann vissi það ekki sjálfur en hann bjó einmitt í Húsdýragarðinum.

Kálfurinn var voða lítill þegar hann fæddist og gat ekki staðið en mamma hans sleikti hann vel og þurrkaði og hvatti hann til að standa á fætur. Loks tókst það og litli kálfurinn var ósköp svangur og langaði að fá mjólk að drekka. “Hvar ætli ég fái nú mjólkursopa?” hugsaði litli kálfurinn.  Einmitt þá kom dýrahirðirinn sem hugsar um kýrnar með fullan pela af volgri mjólk sem mjólkuð hafði verið úr mömmu hans.  Kálfurinn drakk og drakk og varð saddur en honum fannst samt eitthvað vanta. 

Einn daginn kom lítill strákur að skoða kálfinn.  Hann klappaði kálfinum mjög blíðlega og talaði við hann.  “Ég heiti Skúli”, sagði strákurinn við kálfinn.  “Hvað heitir þú?”. “ Ég heiti nú bara kálfur því ég er svo lítill ennþá” svaraði kálfurinn og lygndi aftur augunum því honum fannst svo gott að láta Skúla strjúka sér.  “En hvað er þetta annars sem þú ert með í munninum Skúli” spurði kálfurinn og spenntist allur upp.  “Er þetta peli, ég er nefninlega að verða svangur”.  “Nei, nei “ svaraði Skúli “þetta er kallað snudda.  “Æ, hvað ég vildi að ég ætti svona snuddu” kjökraði kálfurinn. 

Skúla fannst leiðinlegt hvað kálfurinn var dapur og sagði “Núna er ég orðinn svo stór að ég hætti bráðum að nota svona snuddu”.  Svo spurði Skúli mömmu sína og pabba hvort hann mætti ekki gefa kálfinum litla snudduna sína, hann væri hvort sem er eiginlega alveg hættur að nota hana.  Þau fóru þá öll og töluðu við dýrahirðinn sem hugsaði um kýrnar sem fékk snudduna hans Skúla og geymdi hana. 

Svo um kvöldið þegar kálfurinn var búinn að fá mjólkina sína kom dýrahirðirinn með snudduna og þá uppgötvaði kálfurinn hvað það var sem honum hafði allaf fundist vanta ; það var einmitt svona snudda!  Svo sofnaði hann sæll og glaður með snudduna sem Skúli gaf honum. 

Móflekkótt gimbur og svartbíldóttur hrúturÞegar hann fór út daginn eftir hitti hann nokkur lömb og sagði þeim hvað Skúli hafði verið góður að gefa honum snudduna sína.  Og þó að lömbin fengju öll að drekka mjólk hjá mömmu sinni langaði þau líka að fá svona snuddu.  Og mæður lambanna, ærnar, töluðu við dýrahirðana sem hugsa um dýrin í Húsdýragarðinum og fyrr en varði voru börn víðs vegar að búin að gefa lömbunum snuddur sem þau voru hætt að nota og allir grísirnir áttu líka fallegar snuddur. 

Að lokum varð að setja upp horn sem hreindýratarfurinn gaf til að geyma allar snuddurnar á. Dýrahirðarnir í Húsdýragarðinum láta öll dýr sem eru lítil og vilja fá snuddu, fá eina af horninu á kvöldin þegar þau fara að sofa.

Ef Skúli saknaði snuddunnar sinnar eftir þetta, hugsaði hann bara um litla kálfinn sem þótti svo gott að fá snuddu því hann var svo lítill.

Brennó - leikreglur

Til þess að geta leikið þennan leik þarf brennibolta og leikvöll eins og myndin sýnir (gott er að draga línur með krítasteini eða nota það sem er við hendina eins og jakka til þess að marka línurnar).

Þátttakendum er skipt í tvö lið. Í hverju liði er valin einn útikóngur og á hann þrjú líf. Liðin raða sér eins og myndin hér til hliðar sýnir. Nú á hvort lið fyrir sig að reyna að hitta andstæðingana með brenniboltanum.

Þegar það tekst fer viðkomandi liðsmaður yfir til síns útikóngs og er þeim megin á vellinum. Þegar aðeins einn maður er eftir á öðrum hvorum vallarhelmingi fer útikóngur þess liðs út og á þá eins og áður sagði þrjú líf. Það má aldrei teygja sig yfir á vallarhelming andstæðingsins til að ná boltanum.

Annað: Ef boltinn er gripinn á sá liðsmaður sem kastaði honum að fara til síns útikóngs. Allir mega elta boltann ef hann fer út fyrir hliðarlínu, en ef hann fer aftur fyrir á liðið sem þar er boltann. Þegar búið er að “skjóta” alla sem eru í einu liði það lið búið að tapa leiknum.

brenno

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Sept. 2010
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    
 

vefkönnun

Ætlar þú í réttir í haust?


 


Leturstærð: