Naggrísir
Naggrísir - eru ekki lengur íbúar Húsdýragarðsins
Fjölskyldugerð: karl, kerling og ungi.
Þyngd: 400-600 gr.
Fengitími: allt árið.
Meðgöngutími: 50-60 dagar.
Fjöldi afkvæma: 1-5 ungar í hverju goti.
Nytjar: hafa gaman af þeim!
Stiklur um naggrísi
- Naggrísir eru ræktaðir hér á landi sem gæludýr.
- Ólíkt kanínuungum þá fæðast naggrísaungar töluvert sjálfbjarga. Þeir fæðast í raun eins og smækkuð útgáfa af fullorðnum naggrísum. Af þessum sökum er ekki eins mikilvægt fyrir naggrísakerlingu að grafa skýli fyrir ungana sína af því að þeir geta bjargað sér sjálfir.
- Flest þekkjum við hvernig naggrís lítur út, sléttur og loðinn. Fæstir þekkja þó afbrigði naggrísa sem kallast rósetta. Rósettur eru loðnar en í stað þess að vera sléttar þá eru þær mjög úfnar. Þetta orsakast af því að feldurinn er allur í sveipum. Í Húsdýragarðinum er að finna bæði afbrigðin, þ.e. sléttan og rósettu.
Nánari upplýsingar - Naggrísir
Sagan
Naggrísir eru mjög vinsæl gæludýr sem eiga ættir sínar að rekja til Suður-Ameríku. Það eru til 14 tegundir af naggrísum, en þau dýr sem haldin eru fyrir gæludýr eru komin af tegundinni Cavia Cutleri sem lifir í hlíðum Andesfjalla.
Naggrísir voru snemma uppgötvaðir sem heppileg dýr í ýmsar tilraunir og hafa verið notaðir í þeim tilgangi allt frá 1810. Naggrísum er eðlislægt að athafna sig að næturlagi en sem gæludýr hafa þeir snúið sólarhringnum alveg við.
Atferli og fæða
Naggrísir eru frekar viðkvæm dýr en mjög félagslyndir og tryggir húsbændum sínum. Hljóðin sem þeir gefa frá sér eru blístur eða tíst, ekki ólíkt fuglahljóðum. Það gefa þeir frá sér þegar þeir eiga von á fóðri eða gefa til kynna að þeir þekki viðkomandi sem nálgast þá. Talið er að þeir þekki vel fótatak eigenda síns.
Naggrísir eru jurtaætur og fæða þeirra aðallega grænmeti ýmiskonar, ávextir, kornmeti og gróffóður líkt og hey. Einnig nauðsynlegt fyrir þá að hafa aðgang að saltsteinum og öðrum vítamínum. Fái þeir ekki eitthvað hart að naga geta rótopnar tennur þeirra vaxið of mikið og dýrin hreinlega farið að svelta.
Naggrísir þurfa á hreyfingu að halda og gott er að hafa stór búr með ýmsum útbúnaði eins og húsaskjóli sem þeir geta klifrið yfir líka og jafnvel grófa steina, það hjálpar við að slípa klærnar. Ekki er verra að fá að komast út í ferskt gras og loft þegar veður leyfir.
Kynþroski og afkvæmi
Kvendýrin verða kynþroska 30-45 daga gömul en karldýrin 60-70 daga gömul. Best er þó að kvendýrin séu að minnsta kosti orðin 3 mánaða gömul fyrir pörun.
Naggrísir fæða allt árið um kring og meðalfjöldi unga í goti eru 3-4. Ekki gætu allir ungarnir drukkið samtímis þar sem móðirin hefur einungis tvo spena.
Ungarnir fæðast fullburða með sjón og feld og leita eftir fæðu frá fyrsta degi. Ungana má svo taka frá móðurinni þegar þeir nálgast 4 vikna aldur, þá um 180 grömm að þyngd.
Falskt jórtur
Líkt og kanínur eru naggrísir svokallaðir fölsk jórturdýr. Með því eru dýrin að nýta allt sem hægt er úr fæðunni og gera það með því að éta hálfmelta fæðu úr endaþarmi og láta fara aftur í gegnum meltingarfærin. Út kemur þá harður aflangur og þurr saur.
Naggrísir eru mjög snyrtileg gæludýr og venja sig oftast á að setja úrgang sinn alltaf í sama hornið á búrinu. Einnig verja þeir miklum tíma í að snyrta og hirða um feld sinn líkt og kettir gera.



