Kettir

22.2.2005

Kettir

Fjölskyldugerð: högni, læða og kettlingur.Læðan Fluga í Laugardalnum.

Þyngd: 2-4 kg.

Fengitími: allt árið.

 

Meðgöngutími: um 60 dagar.

 

Fjöldi afkvæma: 3-5 kettlingar í hverju goti.

 

Nytjar: Eru kelirófur og því manninum til skemmtunar!

 

Stiklur um ketti

  • Íslenski kötturinn hefur fylgt manninum allt frá landnámi.
  • Íslenska kattarkynið hefur haldist nokkuð vel í gegnum tíðina en nú í dag er orðið svo mikið um innflutning á köttum að einhver blöndun hefur átt sér stað.
  • Í gamla daga var kötturinn mikið nytjadýr á Íslandi. Hlutverk hans var að halda rottum og músum frá híbýlum manna.

Kettirnir í Húsdýragarðinum

Í Fjölskyldu-og húsdýragarðinum er reynt að sýna öll íslensk húsdýr og eru kettirnir engin undantekning. Eins og flestir vita þá fer kötturinn sínar eigin leiðir og því tilviljun háð hvort hinn almenni gestur sjái kettina í garðinum. Þeir búa með starfsfólkinu í skrifstofuhúsnæði garðsins og una sér þar vel meðal ljósritunarvéla og skrifborðsstóla.

Fluga

Læðan Fluga er fædd í maí 1996 og er því elsti kötturinn af þeim sem hér eru. Fluga er sérstök að því leyti að hún heldur nánast til í miðasölunni. Þegar fólk kemur að heimsækja garðinn má oft sjá Flugu (grábröndótt) í glugga Dýrabúðarinnar við aðalinnganginn.

Læðunni var bjargað frá förgun árið 1997 og fékk hér nafnið Fluga. Ástæðan fyrir nafngiftinni var sú að augu hennar voru afar stór og auk þess stökk hún og elti flugur upp á alla skápa. Fluga er mjög duglegur veiðiköttur og má oft sjá hana standa vörð við músarholur í grennd við garðinn.

Músa kettir frá Kattholti

Haustið 2005 voru fengnir kettir frá Kattholti til að flytja í garðinn. Ástæðan var að mikill músagangur var í útihúsum og voru mýsnar farnar að valda töluverðum skaða. Kettirnir voru ekki lengi að vinna á vandanum og er músagangur nú í algjöru lágmarki.

Þessir fræknu kettir fengu nöfnin Nasi, Birta, Síríus og Snickers. Músakettirnir, eins og þau eru kölluð, halda til í einu útihúsi þar sem þau geta farið inn og út eins og þau kjósa, lagt sig á milli veiðiferða eða fengið sér matarbita.   

Nánari upplýsingar - Kettir

Þeir kettir sem eru taldir til gæludýra er kallaðir húskettir og talið er að um 500 milljónir slíkra katta séu í heiminum. Íslenskir kettir eru taldir vera nokkrar þúsundir og eru afkomendur katta sem landnámsmenn fluttu með sér.

Ef á að fá sér kött þarf að huga að ýmsu áður. Sem dæmi þarf daglega að gefa kettinum og þrífa allt sem í kringum hann er. Skoða þarf feld kattarins reglulega, athuga aðskotahluti á loppum, athuga eyru og augu, bursta tennur og margt fleira.

En ef einhver grunur er um að kettinum líði ekki vel þá þarf að fara með hann til dýralæknis. Auk þess þarf að bólusetja köttinn gegn kattafári og kattainflúensu.

Smellið á myndina hér til hliðar til að sjá fleiri myndir af köttum.



Fluga er ekki sjaldséð í miðasölunni.
 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Feb. 2012
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
 

vefkönnun

Hvaða dýr af eftirfarandi dýrum er í uppáhaldi hjá þér?


 


Leturstærð: