Kanínur

7.9.2004

Kanínur

Kanínuungar

Fjölskyldugerð: kani (karl), kæna (kerling) og kjáni (ungi).


Þyngd: 1-2,5 kg.


Fengitími: allt árið.

Meðgöngutími: 29-31 dagar.

Fjöldi afkvæma: 5-7 ungar í hverju goti.

Nytjar: kjöt, feldur og feldur.

Stiklur um kanínur

  • Ræktun á kanínum hefur verið lítil hér á landi en fyrir 15 árum hófu nokkrir bændur að rækta angórukanínur sem aukabúgrein.
  • Kanínur eru nagdýr og eyða töluverðum tíma í það að naga ýmsa hluti. í fyrstu mætti halda að þær hafi einvörðungu gaman að því en þetta atferli er ekki síður mikilvægt fyrir þær. Ef ekki kæmi til nagsins þá myndu tennur þeirra vaxa stöðugt.
  • Ýmis not er af kanínum en má þó helst nefna kjöt og feld, en einnig eru hárin nýtt af angórukanínum.
  • Auðvitað má ekki gleyma að nefna að kanínur eru þekktar fyrir það að gleðja lítil (og stór!) hjörtu.

Kanínur - Nánari upplýsingar

Í Húsdýragarðinum er að finna 4 tegundir af kanínum sem allar hafa sín séreinkenni.

Fyrst má nefna landkanínu en það er sú tegund sem er einna helst ásamt dvergkanínu höfð sem gæludýr.

Feldkanína er ræktuð til að nýta feldinn en ræktun á henni á sér ekki mjög langa sögu hér á landi. Feldur hennar er einkar mjúkur viðkomu og er mjög hlýr.

Holdakanína er þriðja tegundin en hún er oftast ræktuð til matar. Hún verður mjög holdmikil og sérstakt einkenni eru lafandi eyru (English Lop).

Angórukanína eða loðkanína er sérstaklega loðin og eru hár hennar nýtt í fatagerð. Klippa þarf hár hennar reglulega til að geta nýtt hárin en einnig er klippingin nauðsynleg fyrir kanínuna svo hún geti parað sig.

Nagdýr

Kanínur eru af héraætt og líkt og hérar þá eru þau frábrugðin öðrum nagdýrum að því leiti að þau hafa fjórar tennur í efri skolti (önnur nagdýr hafa tvær) og tvær í neðra skolti. Ef kanínur myndu ekki naga hluti og éta harðgerða fæðu þá myndu tennur þeirra vaxa stöðugt og á endanum gætu þær farið í gegnum neðri góminn.

Falskt jórtur

Dýr sem að jórtra hafa þann hæfileika að fullnýta næringu úr fæðunni. Dæmi um dýr sem jórtra eru kýr, geitur, kindur og hreindýr. Kanínur stunda hins vegar það sem kallast falskt jórtur. Kanínan étur sem sagt svokölluð næturspörð eða magakúlur sem hafa þegar farið einu sinni í gegnum meltingarveginn. þannig ná þær að fullnýta gróffóðrið best.

Kjánar og heiti á ýmsum tungumálum

Meðgöngutími kanína er að meðaltali 31 dagar og rokkar gotastærðin milli 4 til 14 unga. Þegar kanínuungar fæðast eru þeir mjög háðir móðurinni því þeir fæðast hárlausir, blindir og tannlausir. Það er í fyrsta lagi eftir fjórar vikur sem þeir fara að yfirgefa heimili sitt og skoða sig um í heiminum. Þá komnir með feld, sjón og tennur.

Til gamans koma hér ýmis heiti á kanínu á ýmsum tungumálum:

Arabíska: arneb

Gríska: lagos

Norska: kanin

Latína: Cuniculus

Finnska: Kani

Franska: le lapin

Pólska: kro´lik

Spænska: conejo.

Smellið á myndina hér að neðan og sjáið fleiri myndir af kanínum.

Feldkanína

Feldkanína.

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Sept. 2010
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    
 

vefkönnun

Ætlar þú í réttir í haust?


 


Leturstærð: