Kalkúnar
Kalkúnar

Fjölskyldugerð: hani, hæna og ungi.
Þyngd: hani 24-30 kg, hæna 14-20 kg.
Fengitími: kalkúnar eru sæddir.
Meðgöngutími: klökun eftir 21 dag.
Fjöldi afkvæma: 3-4 ungar.
Nytjar: kjöt og fjaðrir.
Stiklur um Kalkúna
- Kalkúnar eru ræktaðir á Íslandi í litlu magni og eiga sér ekki langa sögu í íslenskum landbúnaði.
- Kalkúnar geta orðið mjög miklir vexti og holdmiklir. Hanarnir eru ávallt töluvert stærri en hænurnar.
- Ræktaðir kalkúnar geta ekki flogið. Það er vegna þess að búið er að breyta líkamsgerð fuglanna með ræktun.
- Villtir kalkúnar geta hinsvegar flogið. Talið er að villtir kalkúnar geti náð allt að 80km/klst. flughraða.
Kalkúnar - Nánari upplýsingar
Sívinsælla er hér á landi að hafa sérræktaða kalkúna á borðum, einkum yfir jólahátíðina. Það má segja að landinn hafi tekið þann sið upp eftir íbúum N-Ameríku í seinni tíð, en þar skipta fuglarnir tugum milljóna til að metta markaðinn. Sem dæmi er neysla Bandaríkjamanna á fuglinum a Þakkagjörðardaginn 45 milljónir, 22 milljónir á jólum og 19 milljónir á páskum.
Þetta er aðeins tveir þriðju ársneyslunnar þar vestra. Vinsældir þessa fugls eru taldar vera út að því hversu fitulítið kalkúnakjöt er en bragðgott og næringarríkt engu síður. Kalkúnar geta orðið ansi stórir og mettað nokkuð marga í einu og í Heimsmetabók Guiness er skráður þyngsti kalkúnn heims. Hann var 39 kg að þyngd þegar honum var slátrað 1989.
Heimild: vefur Reykjabúsins Reykjum
Karlrembufugl
Kalkúnar og hænur eiga að því virðist eitt sameiginlegt fyrir utan fjölskylduheitin. Hjá hænum viðgengst þessi karlremba að aðeins hanar gala á meðan hænur gagga. Eins er með kalkúnshanann sem gefur frá sér þessi sérkennilegu korr -hljóð. Kvenfuglinn hjá kalkúnum sem einnig kallast hænur, gefa frá sér smá hljóð sem líkjast smelli.
Eyrun
Eyru kalkúna eru ekkert frábrugðin eyrum annarra fuglategunda nema að því leyti að þau sjást mjög vel á kalkúnunum. Ólíkt öðrum tegundum þá er kalkúnninn ekki með fiður á hausnum og því má vel greina eyru þeirra. Fuglar hafa sæmilega heyrn og í biðlun er stundum höfðað til hennar, til dæmis með gali og söng.
Atferli
Ræktaði kalkúnninn er ekki talinn vera ýkja fallegur fugl. Enda búið að ræna þessa fugla því eðlislega útliti og eiginleikum sem villtu tegundinni er nauðsynleg. Þá er átt við litadýrð fjaðranna sem dæmi og búkstærð. Það er eingöngu verið að hugsa um bragðgæði og magn þegar ræktun á sér stað.
Karlfuglarnir hafa þó sinn háttinn á að stíga í vænginn á hinu kyninu, það verður ekki frá þeim tekið. Þeir syngja fyrir þær, skipta litum á höfði, ýfa fjaðrir og hafa litfagrar klær. Auk þess hafa hanarnir húðflipa sem þeir geta lengt eftir vild þegar þeir rekast á kvenfuglinn.
Smellið á myndina og sjáið fleiri myndir af kalkúnum.
Kalkúnahani.

