Fasanar

Hringfasanar

22.2.2005

Fasanar - ekki lengur í Húsdýragarðinum

Fasanahani 04.

 

Phasianus colchicus torquatus

Ættbálkur: Hænsnfuglar

Þyngd: Hani 1100-1500 gr, hæna 900-1100 gr        

Hreiðurstæði: Á jörðu niðri                                   

Útungunartími: 23-25 dagar                                     

Egg: 10-12                                                               

 

Stiklur um fasana

  • Fasaninn er upprunninn í Asíu og eimir sums staðar eftir af frumstofninum á einangruðum stöðum. 
  • Um stærð þessara stofnhópa er ekki vitað, en það er meðal annars vegna þess hversu erfitt er að komast að þeim.  Meðal þeirra undirtegunda sem oftast eru nýttar til veiða eru hringfasani, mongólíufasani og hvítvængjafasani.
  • Fjaðurbúnaður fasana er marglitur og stélið langt og oddlaga.  Það á þó einungis við um hanann því hænan er í dauflegum litum og lítt áberandi.  Það er til þess að hún falli sem best inn í umhverfið þegar hún liggur á eggjum.
  • Fæða hringfasana er mest megnis jurtir, sem dæmi fræ, aldin og sprotar.  Það kemur fyrir að smádýr fljóti með að sumri og hausti, einkum hjá ungunum.

Upphaflega voru fimm fasanar gefnir garðinum frá fólkinu á Tókastöðum Fljótsdalshéraði Þar sem fasanar voru ræktaðir sérstaklega.  

Á Dýranámskeiðinu kíktu krakkarnir á egg fasananna.

Á Dýranámskeiði í garðinum mátti

fara inn til fasananna og leita að eggjum.
 

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Júní 2013
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30            
 

Vefkönnun

Hvað heita kýr Fjölskyldu- og húsdýragarðsins


 


Leturstærð: