Dúfur

6.9.2004

Dúfur

Skrautdúfur í Smádýrahúsinu.

 

 

Fjölskyldugerð: karl, kerling og ungi.


Þyngd: 0,4-3 kg.


Fengitími: allt árið


Meðgöngutími: 12-30 daga


Fjöldi afkvæma: 2-3 ungar


Nytjar: sendiboðar og gæludýr

 

 

 

Stiklur um dúfur

  • Dúfnarækt er mjög þróuð víða um heim og er jafnvel búið að rækta upp dúfur sem geta ekki flogið og jafnvel ekki étið hjálparlaust.
  • Hér á landi eru dúfur ræktaðar sem skrautdúfur og bréfdúfur.
  • Dúfur geta numið segulsvið jarðar á ákveðnu svæði í nefinu. Þegar þeim er sleppt fjarri sínum heimahögum þá byrja þær á því að fljúga hátt upp í loftið og fljúga í hringi. þegar þær hafa fundið út rétta stefnu þá fljúga þær beina leið heim.
  • Dúfur eru eina fuglategundin sem framleiðir mjólk handa afkvæmum sínum. Hún myndast í kirtlum í sarpi foreldranna og svo stingur unginn höfðinu upp í þá til að ná mjólkinni úr sarpinum.

 

Bréfdúfur


Það bendir margt til þess að bréfdúfur hafi verið ræktaðar löngu fyrir Krist, og þá til þess að senda þær með hraðboð á milli staða. Þær eru þeim kostum búnar að vera ratvísar með eindæmum og skila sér ávallt heim þó farið sé með þær í hylki mörg þúsund kílómetra burt frá búi þeirra.

Talið er að dúfur hafi verið fluttar hingað til lands um eða fyrir síðustu aldamót. Menn höfðu kynnst þeim erlendis og vildu reyna þær hér. Bæði voru menn að fikta með ræktun sökum kjötsins en mest megnis sér til gamans. Saga dúfnaræktenda hérlendis er því ekki ítarlega skráð.

 

Skrautdúfur

Skrautdúfur hafa einnig verið ræktaðar hér í töluverðan tíma. Þar var fremstur í flokki Valdimar Nielsen sem lengi bjó við Bergstaðastræti í Reykjavík. Honum hafa síðan fylgt fjölmennur hópur barna og unglinga sem heillast af dúfnarækt.

Nokkrar tegundir dúfna eru; Hoyara, pústara, trommara, prestara, meffíka og elbinga.

Skrautdúfur við Smádýrahúsið.

Skrautdúfunum hleypt út að sumrinu.

Nokkrar tegundir saman, karlfuglarnir ávallt sér nema yfir pörunartímann.

Skrautdúfur á priki.



 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Maí 2013
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  
 

Vefkönnun

Hvað heita kýr Fjölskyldu- og húsdýragarðsins


 


Leturstærð: