Aliendur
Pekingendur 
Fjölskyldugerð: steggur, kolla og ungi.
Þyngd: 1,5-2 kg.
Fengitími: apr-maí
Meðgöngutími: klak eftir 21 dag.
Fjöldi afkvæma: 3-4 ungar.
Nytjar: kjöt og fiður.
Stiklur um pekingendur
- Aliendur eru töluvert ræktaðar hér á landi og hafa fylgt manninum frá ómunatíð. Fiðrið var nýtt í sængur (og er enn nýtt) og kjötið á diskinn og eggin til átu.
- Aliendur hafa verið ræktaðar þannig að þær geta ekki flogið lengur.
- Aliendurnar blanda ekki mikið geði við þær villtu sem koma stundum í heimsókn á vorin í húsdýragarðinn, sennilega því villiendurnar eru þá í leit að varpstöðvum. Villtir fuglar, sem hafa viðkomu í garðinum, eru m.a. stokkendur, rauðhöfðaendur og toppendur.
Pekingendur og aliendur - er munur?
Peking endur eru ávallt hvítar að lit en aliendur geta verið blandaðar og bera þá hina ýmsu liti. Ræktaðar endur eru aðallega komnar út frá stokköndinni, þar hafa menn geta nýtt sér það hversu kynfestulaus stokköndin en hún getur æxlast við nánast hvaða andategund sem er.
Aliöndum er gjaran skipt í tvo hópa; kjötendur og varpendur. Þekktar kjötandategundir eru Rúðuönd, Aylesbury-önd og Pekingönd.

