Húsdýr
Húsdýr eru dýr sem menn hafa tamið sér til gagns eða félagsskapar. Í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum er bæði að finna dýr sem hafa verið á landinu frá landnámstíð og einnig sem hafa verið flutt inn hin síðari ár.
Húsdýr
Þegar landnámsmaðurinn kom til Íslands var þar ekkert landspendýr nema refurinn. Öll dýr sem lifa því á Íslandi hefur maðurinn, vitandi eða óafvitandi, komið með hingað.
Kýr eru dæmi um húsdýr frá landnámsöld.
- Íslenska kýrin þykir lítil en með mörg litaafbrigði.
- Hún getur mjólkað allt að 50 lítum á einum degi.

Dúfur eru dæmi um gæludýr sem maðurinn hefur alið sér til yndisauka.
Í stórborgum víða í Evrópu þykja dúfur vera mikil plága sem eyðileggja steypu utan á byggingum með dúfnaskítnum.

