Haförninn kveður
Undanfarið hefur haförn dvalið í garðinum sem fannst meiddur á væng um miðjan janúarmánuð síðastliðinn. Honum var nú sleppt nálægt þar sem hann fannst austur í Grafningi. þar kom bóndi einn að honum og er talið að örninn hafi flogið á raflínu.
Haferninum sem dvalið hefur í garðinum undanfarið var sleppt nálægt þar sem hann fannst, austur í Grafningi, 19. febrúar.
Kristinn Haukur Skarphéðinsson, Náttúrufræðistofnun Íslands fór með össuna ásamt fríðu föruneyti. Fuglinn virtist vel á sig kominn eftir meiðsli sín á vinstri væng.
Ekki verður alveg sleppt hendinni af össunni því útvarpssendi verður komið fyrir á henni til að kanna næstu daga hvort allt verði ekki í lagi.

