Tónleikar í Fjölskyldu- húsdýragarðinum 5. ágúst

29.7.2012

Blásið verður til stórtónleika í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum sunnudaginn 5. ágúst sem hefjast klukkan 14:00. Þar kemur fram hinn eini og sanni Helgi Björns ásamt Reiðmönnum Vindanna, Ingó Veðurguð og þeir Jónas Sig og Valdimar úr hljómsveitinni Valdimar.  Hinir tveir síðastnefndu munu koma fram sem dúett í tilefni dagsins. Tónleikarnir verða haldnir í samstarfi við Nýherja. Þennan sunnudag verða dagpassar í tækin á hálfvirði. Hoppukastalar munu að auki bætast við leiktækjaframboðið í garðinum alla verslunarmannahelgina.


Dýrin verða að sjálfsögðu heima við og hefðbundin dagskrá á sínum stað. Hafrafellssafnið þar sem meðal annars má finna skriðdýr, alibýflugur og myndarlegt safn uppstoppaðra fugla verður opið alla Verslunarmannahelgina sem og Vísindaveröldin.


Opið verður alla helgina í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum frá til 10 til 18.  Venjulegt helgarverð gildir alla helgina: 600 krónur fyrir 5 til 12 ára, 700 krónur fyrir 13 ára og eldri, ókeypis fyrir 0 til 4 ára og elli- og örorkulífeyrisþega. Árskort gilda rétt eins og alla aðra daga ársins. 


Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Maí 2013
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  
 

Vefkönnun

Hvað heita kýr Fjölskyldu- og húsdýragarðsins


 


Leturstærð: