Atlantsolíudagurinn
Á morgun fimmtudaginn 12. júlí verður hinn árlegi Atlantsolíudagur í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Þennan dag fá allir handhafar dælulykils Atlantsolíu ókeypis inn í garðinn fyrir sig og fjölskyldu sína gegn framvísun dælulykilsins. Þá verða dagpassar í tækin í boði fyrir fjölskylduna á hálfvirði (kr.1000) gegn framvísun dælulykilsins. Fólk er hvatt til að mæta snemma enda er spáin góð!
Fjölbreytt dagskrá verður í boði:
15.00 Skemmtir leikhópurinn Lotta
15:30 mætir Íþróttaálfurinn ásamt Sollu Stirðu
Á milli 15:00 og 17:00 verða blöðrur og frostpinnar í boði fyrir börnin
Hreystibrautin og Sirkus Íslands verða einnig á staðnum.

