Drullumallandi svín
Skemmtilegt og skítugt
Svínin í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum voru einkar hamingjusöm í dag þegar þau fengu að fara út að viðra sig. Krakkarnir sem dvelja í garðinum þessa vikuna á Dýranámskeiði höfðu nefnilega unnið hörðum höndum að því að útbúa dýrðar drullupoll fyrir ferfætta vini sína. Óhætt er að segja að drullupollurinn hafi slegið í gegn því einnig var í honum að finna gómsæt epli sem krakkarnir grófu niður fyrir svínin. Pollurinn er ekki bara skemmtilegur fyrir svínin heldur nota þau drulluna einnig til að þrífa sig og sem sólarvörn.

