Aliendur og aligæsir
Krúttlegir nýbúar
Í garðinum gefur að líta nokkrar aliendur og aligæsir sem flust hafa búferlum frá Húsatóftum á Skeiðum. Alifuglar sem þessir hafa fylgt mönnum frá ómunatíð. Þeir eru ræktaðir vegna fiðurs, kjöts og eggja. Aliendur og aligæsir eru ófleygir fuglar. Kvenfuglarnir liggja á eggjum sínum í 21 dag áður en ungar klekjast út.

