Dýranámskeiðin í sumar

Dýrsleg námskeið í Laugardalnum

16.4.2012

Líkt og fyrri ár stendur Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn fyrir skemmtilegum Dýranámskeðum í sumar. Námskeiðið er fyrir 10–12 ára krakka (f. 2000–2002). Á námskeiðinu vinna krakkarnir með dýr garðsins og námskeiðið því upplagt fyrir krakka sem áhuga hafa á dýrum almennt. Þá er einnig farið í skemmtilega umhverfisfræðslu, gerðar eru vísindatilraunir og undirstöðuatriði tálgunar kynnt fyrir krökkunum. Skráning fer fram í gegnum www.itr.is/sumar og þurfa forráðamenn að hafa aðgang að Rafrænni Reykjavík áður en hægt er að skrá en skráning hefst 23. apríl. Athugið að vefurinn opnar 23. apríl og fram að því geta upplýsingar verið rangar þar en eru réttar hér í "lesa meira".

Hvern dag gefst krökkunum tækifæri á að kíkja inn fyrir girðinguna hjá einhverri dýrategund og komast þá í mikið návígi við dýrin og getur það verið mjög spennandi. Námskeiðið er fimm virkir dagar og hefst kl. 10.00 og lýkur um kl. 15.00 en þá tekur við frjáls tími innan garðsins til kl. 18.00 ef vilji er fyrir hendi. Á lokadegi námskeiðsins er gert ráð fyrir frjálsum tíma þar sem allir þátttakendur fá passa í leiktæki Fjölskyldugarðsins. Það komast 20 krakkar að í hverri viku en þeim verður svo skipt í tvo hópa.

Skráning hefst á www.itr.is/sumar mánudaginn 23. apríl.

NámskeiðTímabil
1. námskeið: 11. til 15. júní- fullbókað!

2. námskeið: 18. til 22. júní- fullbókað!

3. námskeið: 25. til 29. júní- fullbókað!

4. námskeið: 2. til 6. júlí- fullbókað!

5.námskeið: 9. til 13. júlí - fullbókað!

6.námskeið: 16. til 20. júlí- fullbókað!

7.námskeið: 23. til 27. júlí- fullbókað!

8.námskeið: 30. júlí til 3. ágúst- fullbókað!

9.námskeið: 7. til 10. ágúst (4 daga námskeið)- fullbókað!

10.námskeið: 13. til 17. ágúst - fullbókað!

ATH! Sé námskeið fullbókað er hægt að skrá á biðlista á hér.

Þátttökugjald er 21.500 kr. og veittur er 20% systkinaafsláttur. Þátttökugjald fyrir 4 daga námskeið er 17.500 krónur.

Innifalið í þátttökugjaldi er heitur matur í hádeginu, síðdegishressing, skemmtileg og lifandi fræðsla þar sem dýr garðsins koma mikið við sögu og dvöl í garðinum allan daginn auk dagpassa í leiktækin síðasta daginn. 



Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Maí 2013
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  
 

Vefkönnun

Hvað heita kýr Fjölskyldu- og húsdýragarðsins


 


Leturstærð: