Árskortshafar og morgunverkin

Morgunstund gefur gull í mund

23.1.2012

Árskortshöfum (sem eiga árskort í gildi) er nú boðið að taka þátt í morgunverkunum með dýrahirðum garðsins á næstunni en slíkir morgnar hafa verið kallaðir vinamorgnar. Panta þarf fyrirfram á morgnana og vegna fjöldatakmarkana er ekki leyfilegt að taka með gesti enda eru morgnarnir hugsaðir fyrir árskortshafa.

Dagskráin verður á þá leið að árskortshafar mæta klukkan 08:30 og nauðsynlegt er að mæta stundvíslega því hliðið verður opnað sérstaklega fyrir þá og lokað jafnóðum og verkin hefjast. Verkum verður sinnt í fjárhúsi, hesthúsi, fjósi og svínastíu. Dýrunum verður hleypt út og eftir það verður hafist handa við þrif, skítmokstur og gjafir en verkunum verður lokið um klukkan 10 þegar garðurinn er opnaður.

Takmarka þarf fjölda þátttakenda í hvern morgunn og því er nauðsynlegt að skrá þátttöku fyrirfram. Miðað er við að börnin fái að njóta sín við verkin og komast 15 börn að á hverjum morgni. Foreldrar skulu koma með börnum sínum og fylgjast með og aðstoða ef þurfa þykir. Vinamorgnarnir verða í boði allar helgar í febrúar (4. (fullt), 5. (fullt), 11., 12., 18., 19., 25., og 26. febrúar).  

Eftir þrif, mokstur og gjafir í útihúsunum fá árskortshafar að aðstoða dýrahirða við fóðrun villtu dýranna. Fyrst verður hreindýrunum gefið klukkan 10:30, þá selunum klukkan 11:00 og refum og minkum klukkan 11:30.

Áhugasamir eru beðnir að skrá sig á netföngin unnur@husdyragardur.is og lilja@husdyragardur.is og látið fylgja með árskortsnúmer (ath. að árskortið þarf að vera í gildi) og fjölda þátttakenda, barna og fullorðinna. Takið fram hvaða dagur hentar ykkur best og ef til vill einn til vara.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Feb. 2012
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
 

vefkönnun

Hvaða dýr af eftirfarandi dýrum er í uppáhaldi hjá þér?


 


Leturstærð: