Fálki í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

Nær vonandi fullum bata

21.12.2011

Í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum dvelur myndarlegur kvenfálki um þessar mundir en það var Ólafur Nielsen á Náttúrufræðistofnun Íslands sem kom með fálkann í garðinn eftir árekstur fálkans við flutningabíl á sunnanverðu Snæfellsnesi.

Hremmingar fálkans voru nokkuð óvanalegar en hann lenti framan á rúðu flutningabíls sem var á ferð við Staðastað á sunnanverðu Snæfellsnesi. Bílstjórinn sem heitir Sveinn Haukur sá þúst á veginum framundan, sem reyndist vera fálki, sem skyndilega flaug upp og stefndi fyrst frá bílnum. Fálkinn breytti um stefnu og flaug á framrúðuna og féll til jarðar í vegkantinum. Þá var Sveinn Haukur þess fullviss að fálkinn væri dauður og tók hann því upp og setti í kassa á utanverðum bílnum sem hann annars geymir keðjurnar í. Eftir um 20 kílómetra akstur athugaði Sveinn Haukur með fálkann sem tók á móti honum með útbreidda vængina þegar hann opnaði kassann. Fálkinn hafði sem sé ekki drepist við áreksturinn og Sveinn Haukur ók því með hann í Borgarnes þar sem hann býr og fann handa honum vistlegri kassa. Hann hafði samband við Náttúrufræðistofnun og fyrir tilstuðlan Ólafs Nielsen var komið með hann í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn.

Fálkinn hefur nú dvalið í garðinum í tæpa viku og mun dvelja þar áfram fram yfir jól og þiggur að vonum kræsingar þær sem dýrahirðar garðsins reiða fram fyrir hann. Hvort hann nái sér að fullu verður tíminn að leiða í ljós en honum verður sleppt um leið og tækifæri gefst til en fyrst þarf hann að hvílast vel og safna þreki á ný.

074_(2)



Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Feb. 2012
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
 

vefkönnun

Hvaða dýr af eftirfarandi dýrum er í uppáhaldi hjá þér?


 


Leturstærð: