Opnunartími um jól og áramót
Opið verður frá 10 til 12 á aðfangadag, jóladag, gamlársdag og nýársdag. Annars er hefðbundinn opnunartími frá klukkan 10 til 17. Dagskrá í kringum dýrin er að finna hér að ofan. Opið verður í jólahringekjuna milli jóla og nýárs frá klukkan 13 til 16 og hægt verður að skella sér á hestbak í hestateymingum milli hátíða frá klukkan 14 til 14:30. Ekki er búist við að jólakötturinn sem hefur haft aðsetur fari heim í fjöllin fyrr en með síðustu jólasveinum svo hægt verður að kíkja á bæli hans um jól og áramót.

