Uppskeruhátíð býflugnabænda
Hunang, bývax og sultur
Uppskeruhátíð býflugnabænda verður haldin í veitingatjaldi Fjölskyldu- og húsdýragarðsins laugardaginn 4. september milli kl 14.00 og 16.00. Býflugnabændur af sunnanverðu landinu kynna býflugnarækt og koma með sýnishorn af uppskeru sumarsins. Þeir munu gefa gestum að smakka eigin framleiðslu af hunangi sem verður slengt beint úr búinu á staðnum. Einnig verður takmarkað magn af íslensku hunangi til sölu. Sýndar verða lifandi býflugur í sýningarbúri og að auki gefst gestum tækifæri á að skoða og fræðast um býflugnabúið í garðinum. Kynnt verður efnið bývax og hvað hægt er að vinna úr því svo sem krem og kerti. Einnig verður ýmis útbúnaður tengdur býflugnarækt sýndur.
Kvenfélagasamband Íslands verður með sultukynningu á sama tíma. Að þessu sinni munu Eygló Guðjónsdóttir og Ása Atladóttir frá Leiðbeiningastöð heimilanna, gefa góð ráð um sultugerð. Út er kominn hjá Leiðbeiningastöð heimilanna bæklingur um sultugerð: Sultur- Saft – Hlaup – og mauk úr berjum og ávöxtum. Auk uppskrifta að sultum og hlaupi úr ýmsum gerðum ávaxta og berja er að finna í bæklingnum góðar leiðbeiningar um sultugerð og tengt efni, svo sem sótthreinsun á krukkum, geymsluaðferðir og fleira. Húsfreyjan tímarit Kvenfélagasambands Íslands mun liggja frammi.
Þá er þetta síðasta helgin sem tækin eru opin í ár. Vetraropnunartími hefur tekið gildi og verður opið alla daga kl: 10-17. Í tilefni þess er tilboð á dagössum helgina 4. og 5. september 2010, 1.000 krónur stykkið í stað 1700 króna.

