Grunnskólakennarar athugið
Spennandi námskeið
Fræðsludeild Fjölskyldu- og húsdýragarðsins býður upp á nokkur námskeið á komandi skólaári. Kennarar sem kjósa að koma á eigin vegum er bent á að garðurinn er opnaður klukkan 10:00 en þeir sem vilja þiggja leiðsögn eða mæta á eitthvert þeirra námskeiða sem í boði eru geta mætt fyrr. Kostnaður vegna heimsóknar á eigin vegum er engin fyrir nemendur og kennara í grunnskólum Reykjavíkur. Fyrir grunnskóla utan Reykjavíkur er kostnaðurinn 450* krónur á nemanda fyrir 5 til 12 ára og 540* krónur á nemanda fyrir 13 ára og eldri. *Miðast við hóp sem telur fleiri en 10 og allt sé greitt saman.
Starfsfólk Fjölskyldu- og húsdýragarðsins biður kennara og aðra sem koma með hópa í garðinn að brýna fyrir nemendum nauðsyn þess að umgangast dýr og gróður garðsins af nærgætni.
Yfirlit
- Sjá gjaldskrá
- Allir aldurshópar geta komið í garðinn og fengið leiðsögn sem tekur u.þ.b. klukkustund. Ef verið er að taka eitthvað ákveðið fyrir í skólanum s.s. sauðkindina, fugla og þess háttar er um að gera að setja sig í samband við fræðsludeildina. Leiðsögn og snertikennsla í Sjávardýrasafninu stendur einnig öllum aldurshópum til boða. Sjá gjaldskrá.
HEIMSÓKN Í HAFRAFELL
Fyrir alla aldurshópa
Í Hafrafelli er myndarlegt safn uppstoppaðra fugla sem var einkasafn Þórarins Þorkels Jónssonar og var afhent Fjölskyldu- og húsdýragarðinum til varðveislu á síðasta ári. Á sjötta tug fugla má sjá á sýningunni sem er opin alla daga frá 13 til 16. Auk þess er að finna í Hafrafelli skriðdýr og froskdýr en þær fylkingar dýra finnast ekki í íslenskri náttúru. Kennarar geta komið með nemendur sína og fengið leiðsögn um safnið frá klukkan 9:00 á morgnana og getur hún ýmist verið almenns eðlis eða eftir samkomulagi við kennara. Gera má ráð fyrir að leiðsögn um safnið taki um 40 mínútur. Sjá gjaldskrá.
DÝRAFRÆÐSLA.
Fyrir nemendur í 3. bekk.
Í flestum grunnskólum er fjallað um húsdýrin í 3. bekk. Þess vegna bjóðum við upp á dýrafræðslu fyrir þennan aldurshóp þar sem áhersla er lögð á skynjun og skynfæri, ásamt því að fjallað er um lifnaðarhætti dýranna og nytjar okkar af þeim. Þetta námskeið tekur klukkutíma og er í boði á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Sjá gjaldskrá.
VINNUMORGUNN.
Fyrir nemendur í 6. bekk.
Í vinnumorgni fá nemendur tækifæri til að koma og taka þátt í umhirðu dýranna og fá um leið ítarlega fræðslu um dýrin og landbúnaðarstörf. Vinnumorgnar verða alla þriðjudaga og fimmtudaga í vetur. Námskeiðið sem er lítillega breytt frá fyrri árum tekur nú þrjá tíma í stað fjögurra undanfarin ár. Nemendur mæta klukkan 07:45 og er námskeiðinu lokið um klukkan 11:00. Þetta námskeið hefur staðið nemendum til boða frá 1990 og hefur verið vinsælasta námskeiðið í garðinum frá þeim tíma. Hægt er að panta kakó og vöfflur og kostar það aukalega 350 krónur á mann. Athugið að taka þarf sérstaklega fram ef óskað er eftir vöfflum og kakói þegar pantað er eða tilkynna það í síðasta lagi viku fyrir heimsókn. Sjá gjaldskrá.
VILLT ÍSLENSK SPENDÝR.
Fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk.
Spennandi námskeið fyrir elstu nemendur grunnskóla. Á þessu námskeiði er farið ítarlega í lifnaðarhætti og atferli villtra íslenskra spendýra á Íslandi. Námskeiðið tekur um klukkutíma. Sjá gjaldskrá .
DÝR Í SJÓ OG VÖTNUM.
Fyrir nemendur í 4. og 5. bekk.
Á þessu námskeiði kynnast nemendur lífverum og lífríki sjávar og vatna. Nemendur fá tækifæri til að skoða og snerta sjávardýr. Auk fræðslu um íslenskar sjávarlífverur er öðrum vatnalífverum einnig gerð skil, þar á meðal fylkingum dýra sem ekki finnast hér á landi eins og froskdýra og skriðdýra. Nemendur námskeiðsins fá verkefni sem unnin eru á staðnum eða í skólastofu í kjölfar heimsóknar. Námskeiðið er í boði á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Sjá gjaldskrá.
SJÓFERÐIR UM SUNDIN
Fyrir nemendur í 6. bekk.
Á vorönn og verða betur kynntar síðar.
LEIÐSAGNIR UM HÚSDÝRAGARÐINN
Fyrir alla.
Allir aldurshópar geta komið í garðinn og fengið leiðsögn sem tekur u.þ.b. klukkustund. Ef verið er að taka eitthvað ákveðið fyrir í skólanum s.s. sauðkindina, fugla og þess háttar er um að gera að setja sig í samband við fræðsludeildina. Leiðsögn og snertikennsla í Sjávardýrasafninu stendur einnig öllum aldurshópum til boða. Sjá gjaldskrá.
Í gegnum árin hafa fræðslufulltrúar Fjölskyldu- og húsdýragarðsins verið iðnir við að svara þeim spurningum sem vakna hjá kennurum. Hjá okkur er að finna gagnlegar upplýsingar um þær dýrategundir sem í garðinum eru og um að gera fyrir kennara að notfæra sér það. Einnig erum við opnar fyrir hverjum þeim verkefnum sem kennurum dettur í hug að vinna í garðinum með nemendum sínum.
Pantanir
Fræðslufreyjur garðsins eru tilbúnar að taka á móti pöntunum en reynsla undanfarinna ára sýnir að best er að panta tímanlega því hér gildir “fyrstur kemur, fyrstur fær” og á það einkum við um Vinnumorgna. Síminn hjá okkur er 411-5917 og 5918.
Gjaldskrá fyrir fræðslustarf Fjölskyldu- og húsdýragarðsins.
Fyrir grunnskóla Reykjavíkur
- Aðgangur, hópar á eigin vegum á skólatíma Ókeypis
- Leiðsagnir um garðinn (húsdýr og villt spendýr) 5.000 kr. hóp / 1 klst.
- Heimsókn í Hafrafell / fuglar og skriðdýr 3.000 kr. Hóp / 40 mín
- Dýrafræðsla fyrir 3. bekk 5.000 kr. hóp / 1 klst
- Dýr í sjó og vötnum fyrir 4. og 5. bekk 6.500 kr. hóp / 1,5 klst
- Vinnumorgunn fyrir 6. bekk 8.500 kr. hóp / 3 klst
- Villt íslensk spendýr fyrir 8. til 10. bekk 5.000 kr. hóp / 1 klst
- Sjóferð um sundin fyrir 6. bekk Kynnt síðar.
Hópar miðast við 30 nemendur að hámarki. Hægt er að taka á móti tveimur hópum í einu nema í Vinnumorgna og Sjóferðir um sundin, þá kemur einn hópur í einu.
Fyrir grunnskóla utan Reykjavíkur
- Aðgangur, hópar á eigin vegum á skólatíma Aðgangseyrir
- Leiðsagnir um garðinn (húsdýr og villt spendýr) 5.000 kr. hóp / 1 klst. + aðgangseyrir
- Heimsókn í Hafrafell / fuglar og skriðdýr 3.000 kr. Hóp / 40 mín + aðgangseyrir
- Dýrafræðsla fyrir 3. bekk 5.000 kr. hóp / 1 klst + aðgangseyrir
- Dýr í sjó og vötnum fyrir 4. og 5. bekk 7.500 kr. hóp / 2 klst + aðgangseyrir
- Vinnumorgunn fyrir 6. bekk 8.500 kr. hóp / 3 klst + aðgangseyrir
- Villt íslensk spendýr fyrir 8. til 10. bekk 5.000 kr. hóp / 1 klst + aðgangseyrir
Hópar miðast við 30 nemendur að hámarki. Hægt er að taka á móti tveimur hópum í einu nema í Vinnumorgna þá kemur einn hópur í einu.

