Opnunartími breytist 16. ágúst.
Frá og með 16. ágúst breytist opnunartími Fjölskyldu- og húsdýragarðsins en þá verður lokað klukkan 17:00 í stað 18:00. Frá og með 23. ágúst verða leiktækin lokuð á virkum dögum en opin um helgar til ágústloka. Fjölskyldugarðurinn verður líkt og fyrri ár opinn sem útivistarsvæði á opnunartíma í vetur. Dýrin taka á móti gestum alla daga og Vísindaveröldin og Sjávardýrsafnið verða opin daglega frá klukkan 10 til 17 og Kaffihúsið verður opið frá klukkan 10 til 16:30.
Á haustmánuðum verða Vinamorgnar í boði fyrir árskortshafa sem verða auglýstir þegar nær dregur með góðum fyrirvara. Þá gefst árskortshöfum tækifæri að koma í heimsókn fyrir opnun og taka þátt í morgunverkunum með dýrahirðunum.

