Kennarar athugið

Sjóferðir um sundin

4.3.2010

Líkt og undanfarin ár gefst nemendum í 6. bekk grunnskóla kostur á að skella sér í skemmtilega og lærdómsríka Sjóferð um Sundin í vor. Verkefnið er samvinnuverkefni Faxaflóahafna og sjávardýrasafns Fjölskyldu og Húsdýragarðsins. Sjóferðirnar eru í boði frá 3. maí til 4. júní 2010 og verða þrjár ferðir á dag kl. 8:30, 10:00 og 11:30. Sjá "lesa meira"

Markmiðið með þessu verkefni er að gefa nemendum kost á að kynnast umhverfi Reykjavíkurhafnar og lífríki sjávar í Sundunum. Markmið í Íslandssögu, náttúrufræðum og lífsleikni falla vel að þessu verkefni.

Skólarnir panta sem fyrst annað hvort með því að senda póst á netfangið unnur@husdyragardur.is eða slá á þráðinn til fræðsludeildar í síma 411-5900. Sjóferðin kostar kr. 300,- á nemanda. Skólar sjá sjálfir um ferðir niður að Grófarskála við Miðbakkann þaðan sem lagt verður af stað í ferðalagið um Sundin. Í hverja ferð geta farið að hámarki 30 nemendur ásamt kennara/um sínum og hver ferð tekur tæplega eina og hálfa klukkustund. Kennarar skulu áður en lagt er í ferðina hafa reiðubúinn nemendalista og afhenda skipstjóra hann. Greiðslu, reiðufé eða beiðni, skal afhenda skipstjóra í upphafi ferðar. Hver bekkur fær til eignar sérunnin námsgögn.

Nauðsynlegt er að nemendur séu klæddir eftir veðri og hafa ber í huga að oft er kaldara til sjós en á landi. Fyllsta öryggis verður gætt og verða allir nemendur í björgunarvestum.

Umsjón með kennslu um borð: Þorkell Heiðarsson Sjávarlíffræðingur við Sjávardýrasafnið



Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Feb. 2012
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
 

vefkönnun

Hvaða dýr af eftirfarandi dýrum er í uppáhaldi hjá þér?


 


Leturstærð: