Kisurnar í Húsdýragarðinum

19.2.2010

Í húsdýragarðinum eru búsettar fimm kisur. Ekki hafa þær allar sama tilgang með veru sinni í garðinum. Sumar eru „hefðarkisur“ en aðrar „útikisur“.

Tvær eru svokallaðar „hefðarkisur“, það eru þær Fluga og Skata. Fluga er oft dægrin löng staðsett í miðasölunni og hafa gestir eflaust oft séð hana þar. Liturinn á henni er fallega ljósgrár og Fluga er með fallega græn augu. Enginn köttur sem býr í Húsdýragaðinum hefur meira hefðarkattarblóð í æðum sínum en hún. Flugu finnst ekki nema sjálfsagt að henni sé þjónað og ef vantar mat eða vatn hjá henni fer það ekki framhjá neinum. Fluga mjálmar hátt og snjallt þar til hún er búin að fá sitt. Ekki er vitað með vissu hvað Fluga er gömul því hún fluttist til okkar sumarið 1998 þá fullorðin.

         Skata er eini kettlingurinn sem býr í garðinum en hún flutti núna í janúar síðastliðnum. Dagana síðan hún kom hefur Skata verið dugleg í að nýta í ferðalög um nýju heimkynni sín sem eru húsið Hafrafell. Eftir nokkra daga inni við hefur Skötu verið boðið að kíkja út en allt kemur fyir ekki hún hleypur jafn harðan inn. Skata virðist ætla að vera skrifstofuköttur númer eitt því fátt veit hún skemmtilegra en ef einhver er að klippa eitthvað. Nafnið sitt fékk Skata því grár blettur ofan á hausnum á henni minnir svolítið á fiskinn skötu. Kisurnar Fluga og Skata fá að eiga heima í Hafrafelli sem er skrifstofuhús húsdýragarðsmegin í garðinum. Þær eru enn að kynnast og er Skata töluvert áhugasamari um Flugu.

Hinar kisurnar þrjár eru oftast kallaðar músakettir eða útikettir það eru þau Birta, Nasi og Siríus. Híbýli þeirra eru eitt af útihúsunum sem er milli fjárhúss og fjóss. Þessar útikisur sjá um að halda músagangi í lágmarki og standa þau sig með mikilli prýði í vinnunni sinni. Nasi telur sig vera ókrýndan konung útikatta og finnst ekkert eðlilegra en að hann fái allan matinn sem í boði er fyrir ketti. Því þarf að skilja á milli kattana á matartímum og er Nasi settur einn með sinn mat. Nasi er nautnaseggur og finnst gott að láta strjúka sér og klóra. Oft má sjá Nasa á vappi um garðinn en nú í vetur heldur hann sig mikið inni í verkfærahúsinu sem er heimili útikatta.

Birta er læðan í útikattahópnum og er hún hvað duglegust að vera úti. Ef hún er ekki inní fjósi bíður Birta oft fyrir utan fjósið og notar fyrsta tækifæri til að skjóta sér inn í hlýjuna. Ef Birta er heppin kemst hún í fóðrið hjá svínunum. Stundum liggur Birta í heyinu hjá kúnum og sefur vært. Þá vill kisa ekkert láta trufla sig og reyndar er Birta sú kisa sem vill síst láta knúsa sig. Ef Birta er ósátt mjálmar hún hátt og bíður svo eftir að vera sett niður. Það mætti halda að Birta kynni á klukku því oft er hún mætt á steinanan hjá selunum á þeirra matartíma. Stundum fær Birta eina og eina loðnu en það er helst á tyllidögum.

Síðastur en alls ekki sístur er hann Síríus. Gulur og stór fress sem spígsporar um garðinn og er hvers manns hugljúfi. Síríus hefur stórar og fallegar loppur og unir hag sínum vel í húsdýragarðinum þó vinur hans Nasi telji sig fara með tögl og haldi í kattaheimi.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Feb. 2012
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
 

vefkönnun

Hvaða dýr af eftirfarandi dýrum er í uppáhaldi hjá þér?


 


Leturstærð: