Þorri frá Þúfu
Stóðhesturinn Þorri
Stóðhesturinn Þorri frá Þúfu er kominn til vetrardvalar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal. Þorri sem er brúnn að lit er undan Orra frá Þúfu og Hviðu frá Þúfu. Þorri er á 21. vetri og er því árinu eldri en Fjölskyldu- og húsdýrgarðurinn en 20 ára afmæli garðsins verður fagnað á árinu. Þorri hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á Landsmóti hestamanna árið 2002 og fyrsta sætið.
Þorri er ekki fysti stóðhesturinn sem heimsækir garðinn því áður hafa margir gæðingar dvalið í Laugardalnum vetrarlangt. Ástæða þess að stóðhestar eru fengnir í heimsókn er fyrst og fremst sú að eitt af markmiðum í rekstri Fjölskyldu- og húsdýragarðsins er að hafa til sýnis bæði kyn af hverri dýrategund og fjölbreytilega liti.
Þorra virðist líka dvölin í hesthúsinu vel enda var hest- og fjárhúsið nýlega tekið til endurbóta og eru stíurnar rúmbetri og nútímalegri en áður. Önnur hross í húsinu eru hryssurnar Hilda sem er bleikálótt, Dagvör grá og Gola jarpvindótt og geldingurinn Fylkir sem er móvindóttur og tvístjörnóttur. Í fjárhúshlutanum býr hrúturinn Mjölnir ásamt sínum ám og hafurinn Klettur ásamt huðnunum sínum.

