Vorboði í handboltafári.

29.1.2010

Það hefur varla farið fram hjá nokkrum Íslendingi að íslenska handboltalandsliðið er að gera frábæra hluti á Evrópumeistaramótinu í Austurríki og stolt þjóðarinnar á “Strákunum okkar” er í hámarki. Spennan virðist hafa skilað sér alla leið inn í fjárhús Fjölskyldu- og húsdýragarðsins því fyrsti vorboðinn leit dagsins ljós miðvikudaginn 27. janúar. Það var gráflekkótta huðnan Maðra sem bar hvítum geithafri en geitburður hefur aldrei hafist eins snemma og nú. Maðra kom ásamt huðnunum Mjöll og Bót frá Möðrudal á Fjöllum síðastliðið haust og fylgdi þessi laumufarþegi með. Maðra virðist hafa verið gengin fulla meðgöngu og hafi því fest fang síðsumars í sveitasælunni á Möðrudal. Kiðlingurinn litli hefur fengið nafnið Guðmundur og er nafnið sótt til þjálfara íslenska karlalandsliðsins í handknattleik.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Feb. 2012
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
 

vefkönnun

Hvaða dýr af eftirfarandi dýrum er í uppáhaldi hjá þér?


 


Leturstærð: