Kálfarnir í fjósinu fá nöfn
Fyrir jólin fæddust tveir kálfar í fjósinu. Kálfarnir eru undan kúnum Skræpu og Brák sem hafa fasta búsetu í fjósinu. Kálfarni hafa verið nafnlausir en nú hafa þeir fengið nöfnin Huppa og Skjöldur.Kvígan Huppa er rauðhuppótt á litinn undan Skræpu en Skjöldur er rauðskjöldóttur undan Brák.
Um jólin var gestum boðið að koma með uppástungur að nöfnum og voru þessi fínu nöfn ein af þeim. Þökkum við fyrir margar og skemmtilegar uppástungur.

