Spennandi námskeið fyrir leikskólanemendur.

22.1.2010

Gaman og fróðlegt getur verið fyrir leikskólanemendur að kíkja í heimsókn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn með kennurum sínum. Tvö námskeið, sérstaklega hugsuð fyrir leikskóla, eru í boði hjá fræðsludeild garðsins. Annars vegar námskeiðið "Hani, krummi, hundur, svín" þar sem húsdýrin okkar eru tekin fyrir og hins vegar "Brettum upp ermarnar" þar sem lífverur hafsins eru skoðaðar. Sjá frekari upplýsingar í "lesa meira".

Í fyrsta lagi er það námskeiðið “Hani, krummi, hundur, svín” þar sem húsdýr okkar Íslendinga eru sérstaklega tekin fyrir og reynt að komast nær dýrunum en gestir almennt fá, sé þess kostur. Fræðslufulltrúi garðsins tekur á móti hópnum og kynnir t.d. fjölskyldugerð dýranna, helstu einkenni þeirra, nytjar og jafnvel liti. Námskeiðið tekur um 60 mínútur og kostnaður 5000 krónur fyrir hópinn, að hámarki 20 í hóp.


Í öðru lagi er um að ræða “Brettum upp ermarnar”. Fræðslufulltrúi tekur á móti hópnum og kynnir honum nöfn og einkenni helstu sjávarlífveranna. Að því loknu fá þátttakendur sjálfir að bretta upp ermarnar og handleika sjávarlífverur í sérstökum snertikerjum. Námskeiðið tekur um 40 mínútur og kostnaður 4000 krónur fyrir hópinn, að hámarki 20 í hóp.

Bókanir eru hjá Unni í síma 411 - 5918   eða á netfanginu unnur@husdyragardur.is og hjá Lilju Björk í síma 411 - 5917 eða á netfanginu lilja@husdyragardur.is


Athugið að gjaldskrá garðsins miðast við að greiddur sé aðgangseyrir fyrir 5 ára og eldri en leikskólar í Reykjavík borga ekki aðgangseyri á skólatíma heldur aðeins fyrir námskeiðin.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Mars 2010
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      
 

vefkönnun

Hvað heita kisurnar í Fjölskyldu og -Húsdýragarðinum?


 


Leturstærð: