Vinamorgnar á Þorra og Góu.

Hressandi morgunverk.

20.1.2010

Árskortshöfum er boðið að taka þátt í vinamorgnum með dýrahirðum garðsins um helgar í febrúar, sjá nánar í “lesa meira”. Vinamorgnar eru meðal þeirra fríðinda sem árskortshafar fá með kaupum á árskortum í garðinn. Önnur fríðindi eru þau að dagpassar fást í hverri heimsókn (þegar leiktækin eru opin), endurgjaldslaust á hestbak um helgar yfir vetrarmánuðina og tilboð í kaffihúsi garðsins. Árskortshafar ganga einnig endurgjaldslaust inn og út úr garðinum á hefðbundnum opnunartíma í eitt ár frá kaupdegi kortsins.

Takmarka þarf fjölda þátttakenda í hvern morgunn og því er nauðsynlegt að skrá þáttöku fyrirfram. Miðað er við að börnin fái að njóta sín við verkin og komast 20 börn að á hverjum morgni. Foreldrar koma að sjálfsögðu með börnum sínum og fylgjast með og aðstoða ef þurfa þykir. Vinamorgnarnir verða í boði dagana 6., 7., 13., 14., 20., 21., 27. og 28. febrúar.

Dagskráin verður á þá leið að árskortshafar mæta klukkan 08:30 og nauðsynlegt er að mæta stundvíslega því hliðið verður opnað sérstaklega fyrir þá og lokað jafnóðum og verkin hefjast.

Verkum verður sinnt í fjárhúsi, hesthúsi, fjósi og svínastíu. Dýrunum verður hleypt út og eftir það verður hafist handa við þrif og skítmokstur en verkunum verður lokið um klukkan 10.

Að loknum verkum verður tilboð í Kaffihúsi fyrir árskortshafa; Soðbrauð með osti, skúffukaka og kaffi / kakó á 500 krónur. Einnig geta árskortshafar haft með sér nesti. Að lokum fá árskortshafar að aðstoða dýrahirða við fóðrun villtu dýranna. Fyrst verður hreindýrunum gefið klukkan 10:30, þá selunum klukkan 11:00 og refum og minkum klukkan 11:30.

Áhugasamir eru beðnir að skrá sig á netfangið lilja@husdyragardur.is og látið fylgja með árskortsnúmer og fjölda þátttakenda, barna og fullorðinna. Takið fram hvaða dagur hentar ykkur best og ef til vill einn til vara. Látið einnig fylgja hvort þið hafið áhuga á að fá ykkur tilboð í kaffihúsi að loknum verkum svo nóg verði nú af kræsingum.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Mars 2010
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      
 

vefkönnun

Hvað heita kisurnar í Fjölskyldu og -Húsdýragarðinum?


 


Leturstærð: