Breytt verð á árskortum.
Frá og með laugardeginum 23. janúar verða gerðar gjaldskrárbreytingar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Grunngjaldskráin, það er að segja aðgangseyrir virka daga og um helgar verður óbreytt frá því sem nú er en verð á árskortum og skemmtimiðum breytist. Nýtt verð á árskortum verður 7.500 krónur á einstaklingskortum og 14.500 fyrir fjölskyldukort. Skemmtimiði mun eftir 23. janúar kosta 220 krónur. Árskort gilda í eitt ár frá kaupdegi og fjölskyldukort gilda fyrir foreldra og börn þeirra.

