Jólakveðja
Starfsfólk og íbúar Fjölskyldu- og húsdýragarðsins þakka öllum þeim gestum sem sóttu garðinn heim á líðandi ári og hlakkar til að taka á móti enn fleirum á komandi ári. Árskortshafar hafa aldrei verið fleiri en nú og færum við þeim okkar bestu óskir um gleðileg jól og hamingjuríkt komandi ár sem og landsmönnum öllum nær og fjær. Munum að huga vel að dýrunum í kringum áramótin þegar Íslendingar kveðja gamla árið og taka á móti því nýja með tilheyrandi flugeldalátum.

